2014-03-06 17:33:44 CET

2014-03-06 17:34:45 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Félagsbústaðir hf. - Ársreikningur

Ársuppgjör Félagsbústaða fyrir árið 2013


Félagsbústaðir hf, sem eru hlutafélag í eigu Reykjavíkurborgar, eiga og reka
félagslegt leiguhúsnæði sem úthlutað er af Velferðarsviði Reykjavíkurborgar.
Markmið félagsins er að starfa í þágu almannaheilla og skal rekstur þess vera
sjálfbær. Félagið á og rekur 1.777 almennar leiguíbúðir auk 307 þjónustuíbúða
fyrir aldraða ásamt 137 litlum íbúðum í sambýlum fyrir fatlað fólk, eða samtals
2.221 íbúðir í Reykjavík. 

Rekstur og afkoma

Rekstrartekjur Félagsbústaða hf. á árinu 2013 námu 2.958 millj. kr., sem er
5,6% aukning tekna frá árinu á undan aðallega vegna verðlagshækkunar leigu. 

Rekstrargjöld námu samtals 1.502 millj. kr. og hækkuðu milli ára um 7,9%. Af
einstökum rekstrarþáttum hækkaði rekstrarkostnaður fasteigna um 7,0% og
launakostnaður um 9,0%. Gjaldfært viðhald fasteigna nam um 1,54% af verðmati
þeirra í árslok. Framlag til afskrifta leiguskulda hækkaði úr 51 millj. kr. í
64 millj. kr., eða um 24% og svaraði til um 2,2% af leigutekjum ársins miðað
við 1,8% árið á undan. 

Rekstrarhagnaður Félagsbústaða hf. fyrir vaxtagjöld, verðbætur lána og
matsbreytingu fjárfestingaeigna jókst um 3,2% milli ára, úr 1.411 millj. kr.
árið 2012 í 1.457 árið 2013. 

Hrein vaxtagjöld námu 924 millj. kr. og minnkuðu um 9% milli ára og nam
vaxtaþekja rekstrarhagnaðar ársins 2013 1,57 miðað við 1,39 árið á undan. 

Rekstrarafkoma Félagsbústaða hf. fyrir verðlagsbreytingar lána og matsbreytingu
eigna nam 533 millj. kr. á árinu 2013 miðað við 396 millj. kr. árið á undan sem
35% aukning milli ára. 

Verðbreyting lána nam samtals 824 millj. kr. og hefur þá verið tekið tillit til
165 millj.kr. höfuðstólslækkunar láns frá Íslandsbanka hf., upphaflega með
gengisviðmiði frá árinu 2008 en því hefur nú verið breytt í óverðtryggt lán í
íslenskum krónum 

Við mat á eignum Félagsbústaða til útleigu er stuðst við mat fasteignaskrár
Þjóðskrár Íslands sem var í gildi í árslok 2013 að teknu tilliti til 8%
hækkunar á vísitölu íbúðaverðs í fjölbýli í Reykjavík frá febrúar 2013.
Matsbreyting fjárfestingaeigna félagsins nam 1.891 millj. kr. á árinu 2013 en
var 2.855 millj. kr. árið 2012. 

Hagnaður Félagsbústaða hf. nam 1.606 millj.kr. á árinu 2013 en var 2.266
millj.kr. árið 2012. 

Efnahagsreikningur 31.12.2013

Heildareignir Félagsbústaða hf. í árslok 2013 námu ríflega 42 milljörðum kr. og
jukust um 2,2 milljarða kr. á árinu, eða um 5,4%, aðallega vegna matsbreytingar
fjárfestingaeigna félagsins. Eigið fé félagsins nam 12,7 milljörðum.kr. í
árslok 2013 og jókst um tæpa 1,7 milljarða kr. milli ára, eða um 15%.
Eiginfjárhlutfall var 30% í árslok 2013 en var 28% árið á undan. 

Sjóðstreymi
Handbært fé frá rekstri nam 482 millj. kr. á árinu 2013 sem er um 94 millj. kr.
meira en árið á undan. Fjárfestingar á árinu 2013 námu 274 millj. kr. miða við
460 millj., kr árið áður. Fjármögnunarhreyfingar ársins voru neikvæðar um 210
millj. kr. samanborið við 70 millj. kr. árið áður. Á árinu 2013 keypti félagið
14 íbúðir og seldi 8 íbúðir. 

Félagið endurfjármagnaði á árinu skuldabréfaflokk FEL 97 1A sem bar 5,0%
verðtryggða vexti. Endurfjármögnun var gerð í samvinnu við Lánasjóð
Sveitarfélaga. Nýtt lán hljóðar upp á 2,8 milljarða króna og ber 3,32% vexti
umfram verðtryggingu.