2011-07-01 12:22:12 CEST

2011-07-01 12:23:12 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Reykjavíkurborg - Fyrirtækjafréttir

Útgáfuáætlun Reykjavíkurborgar júlí - desember 2011


Í fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir árið 2011 kemur fram að
Reykjavíkurborg áætlar lántökur að fjárhæð 6.300 mkr vegna framkvæmda. Á
fyrrihluta ársins 2011 hefur skuldabréfaflokkurinn RVK 09 1 verið stækkaður um
2.440 mkr að nafnverði. Á síðari hluta ársins 2011 stendur til að gefa út
skuldabréf í þeim flokki að nafnverði 3.860 mkr.  Stærð skuldabréfaflokksins
RVK 09 1 er 11.770 mkr að nafnverði 1 júlí 2011. 

Borgarráð samþykkti á fundi sínum þann 30 júní sl. eftirfarandi tillögu að
útgáfuáætlun vegna stækkunar skuldabréfaflokksins RVK 09 1 það sem eftir lifir
árs 2011. Útboð munu því fara fram í eftirfarandi vikum: 

Ágúst: vika 34.
September: vika 38.
Október: vika 43.
Nóvember: vika 47.
Desember: vika 51.

Lántaka í hvert sinn nemi allt að 1.000 milljónum króna, enda sé á því þörf og
ásættanleg kjör í boði. 

Tilkynnt verður um fyrirkomulag einstakra útboða í fréttakerfi NASDAQ OMX á
Íslandi a.m.k 1 virkum degi fyrir útboð. 

Reykjavíkurborg áskilur sér allan rétt til að víkja frá áætlun þessari og mun
þá tilkynna um breytingar þar að lútandi í fréttakerfi NASDAQ OMX á Íslandi 

Nánari upplýsingar gefur:

Birgir Björn Sigurjónsson
Fjármálastjóri Reykjavíkurborgar
Sími: 411-1111