|
|||
2013-03-06 19:24:12 CET 2013-03-06 19:25:41 CET REGULATED INFORMATION Marel hf. - Niðurstöður hluthafafundaHelstu niðurstöður aðalfundar MarelAnn Elizabeth Savage er ný í stjórn Aðalfundur Marel var haldinn í höfuðstöðvum félagsins í Garðabæ 6. mars. Allar tillögur sem lágu fyrir fundinum voru samþykktar samhljóða. Ávarp stjórnarformanns „Marel hefur vaxið um 29% á síðustu fjórum árum sem samsvarar að meðaltali 6,5% tekjuvexti árlega. Þessi mikli vöxtur varð að veruleika þrátt fyrir krefjandi efnahagsaðstæður. Á sama tíma hefur framboð á nýjum vörum verið stöðugt og sölu- og þjónustunet Marel um allan heim eflt til muna. Marel er í hringiðu þeirra vinda sem blása og móta efnahagslega framvindu í heiminum. Neysla á kjúklingi, kjöti og fiski er að aukast með vaxandi fólksfjölda í borgum og stækkandi millistéttum alþjóðlega. Ekki síður er mikilvæg sú staðreynd að eftirspurn eftir heilsusamlegri og hagkvæmri tilbúinni matvöru er að aukast. Vel gengur að framfylgja stefnu Marel um framtíðarvöxt. Við gerum ráð fyrir áframhaldandi innri vexti sem muni skila sér í heildartekjum yfir einum milljarði evra í lok árs 2017 og jafnframt góðri arðsemi,“ sagði Árni Oddur Þórðarson, stjórnarformaður Marel í ávarpi sínu á fundinum. Hann sagði enn fremur: „Mestu umsvifin stafa af þjónustu okkar við framleiðendur í kjúklingaiðnaði um allan heim og sá hluti starfseminnar skilar arðsemi eins og hún gerist best hjá sambærilegum fyrirtækjum. Við útilokum ekki minni yfirtökur til að styrkja starfsemina og auka arðsemi okkar í fiski, kjöti og frekari vinnslu.“ Ársreikningur og arðgreiðsla samþykkt Fundurinn samþykkti samhljóða ársreikning og skýrslu stjórnar fyrir árið 2012. Heildartekjur Marel á árinu námu 714 milljónum evra og hagnaður eftir skatta nam 35,6 milljónum evra. Marel mun greiða 7,1 milljón evra í arð til hluthafa sem samsvarar um 20% af hagnaði félagsins á síðasta ári. Ann Elizabeth Savage kemur ný inn í stjórn Ann Elizabeth Savage var kjörin ný í stjórn Marel en Friðrik Jóhannsson, sem setið hefur í stjórninni frá 2004, hverfur á braut. Í ræðu sinni þakkaði stjórnarformaður Marel honum mikilvægt framlag og góð störf á miklu vaxtarskeiði í sögu félagsins. Á þessu tímabili fór Marel í árangursríkar yfirtökur á erlendum félögum til að leggja grunn að frekari innri vexti félagsins. Stjórnarformaðurinn bauð jafnframt Ann Elizabeth velkomna til starfa, en framlag hennar verður mikilvæg viðbót þar sem hún býr yfir víðtækri reynslu og þekkingu á matvælaiðnaði. Aðrir kjörnir í stjórn eru Arnar Þór Másson, Árni Oddur Þórðarson, Ásthildur Margrét Otharsdottir, Helgi Magnússon, Margrét Jónsdottir og Theo Bruinsma. Einnig var gerð breyting á samþykktum félagsins sem snýr að innleiðingu lögbundinna kynjahlutfalla í stjórninni. Ný stjórn Marel hefur komið saman og skipt með sér verkum. Árni Oddur Þórðarson verður áfram stjórnarformaður og Ásthildur Margrét Otharsdóttir er varaformaður stjórnarinnar. |
|||
|