2014-04-11 11:12:50 CEST

2014-04-11 11:13:51 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Reginn hf. - Fyrirtækjafréttir

Tilkynning um undirritun Regins hf. á samkomulagi um kaup á fasteignum Hótel Óðinsvé


Undirritað var í gær, eftir lokun markaða 10. apríl  2014, samkomulag milli
Regins hf. og Gamma ehf. um kaup á félagi sem á fasteignirnar er hýsa Hótel
Óðinsvé. 

Fasteignirnar í félaginu eru Þórsgata 1 og Lokastígur 2, 101 Reykjavík.
Fasteignirnar eru 2.000 m2 og staðsettar í hjarta Reykjavíkur. Hótel Óðinsvé er
fjögurra stjörnu  með 50 herbergi,  þar er einnig  rekinn  einn vinsælasti
veitingastaðurinn í dag, Snaps en samningurinn við rekstraaðila var nýverið
endurnýjaður til 15 ára.  Engin breyting verður því á rekstrinum við þessi
eigandaskipti.  Sömuleiðis er rekið smurbrauðsstofan Brauðbær sem hefur haft
aðstöðu þar í áratugi. Ef af kaupunum verður þá mun samhliða verða undirritaður
leigusamningur við Gamma ehf. um áframhaldandi rekstur hótelsins. 

Undirritað samkomulag aðila er með ýmsum fyrirvörum, þar á meðal um að
niðurstaða áreiðanleikakannana leiði ekki í ljós atriði sem breyta að verulegu
leyti því mati Regins sem lagt er til grundvallar kaupunum. 

Kaupverðið er trúnaðarmál en ef af kaupunum verður er áætlað að EBITDA Regins
hækki um rúmlega 2% miðað við útgefna rekstrarspá fyrir 2014 og eignasafn
Regins stækki um 1%.  Kaupin eru í samræmi við fjárfestingastefnu Regins hf.
sem fela í sér markmið að auka hlutdeild í hótelhúsnæði og stækkun með innri
vexti og fjárfestingu í arðbæru atvinnuhúsnæði með góða staðsetningu. 

Nánari upplýsingar veitir:

Helgi S. Gunnarsson

Forstjóri Regins hf.

S: 512 8900 / 899 6262