|
|||
![]() |
|||
2012-03-23 15:11:43 CET 2012-03-23 15:12:43 CET BIRTINGARSKYLDAR UPPLÝSNINGAR Landsvirkjun - FyrirtækjafréttirMoody‘s staðfestir óbreytta lánshæfiseinkunn Landsvirkjunar, Baa3, en hækkar grunneinkunn upp um einn flokk eða úr B2 í B1Matsfyrirtækið Moody's hefur staðfest lánshæfiseinkunn Landsvirkjunar, Baa3, með neikvæðum horfum. Einkunnin endurspeglar samvarandi einkunn Ríkissjóðs Íslands. Þá hefur Moody's hækkað grunneinkunn Landsvirkjunar úr B2 í B1 vegna bættrar fjárhagsstöðu Landsvirkjunar. Í tilkynningu frá Moody's segir meðal annars að samfara staðfestingu á óbreyttri lánshæfiseinkunn Landsvirkjunar (Baa3) hefur Moody's hækkað grunneinkunn Landsvirkjunar (Standalone einkunn eða Baseline Credit Assessment, BCA) úr B2 í B1. Ástæðan er bætt fjárhagstaða Landsvirkjunar þar sem sjóðstreymi hafi styrkst og lausafjárstaða batnað. Auk þess er tekið tillit til sterkrar fjárhagsstöðu og mikilvægi fyrirtækisins á íslenskum raforkumarkaði með stuðningi af sterku eignasafni til vinnslu á endurnýjanlegri orku. Hörður Arnarsson, forstjóri Landsvirkjunar: „Það að hækka grunneinkunn Landsvirkjunar eru mikilvæg skilaboð og sýna að fyrirtækið er á réttri leið. Landsvirkjun hefur unnið markvisst að því að draga úr skuldsetningu í kjölfar gangsetningar Kárahnjúkavirkjunar og bæta reksturinn. Þó er enn mikið verk óunnið en þrátt fyrir hækkun grunneinkunnar í B1 er hún enn 4 flokkum fyrir neðan lánshæfiseinkunnina, Baa3. Fyrirtækið er enn of skuldsett og verður áfram lögð áhersla á að lækka skuldir á næstu árum“. Nánari upplýsingar veitir Rafnar Lárusson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, í síma 515-9010, netfang: rafnar@lv.is. |
|||
|