2012-03-23 16:38:42 CET

2012-03-23 16:39:43 CET


BIRTINGARSKYLDAR UPPLÝSNINGAR

Íslenska
Landsvaki - Ársreikningur

Ársuppgjör Landsvaka fyrir árið 2011


Stjórn Landsvaka hf., sem rekur verðbréfa-, fjárfestingar- og fagfjárfestasjóði
Landsbankans, hefur staðfest ársreikning félagsins fyrir árið 2011.  Í lok
ársins 2011 annaðist Landsvaki hf. rekstur 22 sjóða um sameiginlega
fjárfestingu en á árinu voru stofnaðir 2 nýir sjóðir og 2 sjóðir voru
sameinaðir í einn.  Í árslok nam heildarstærð sjóða í rekstri Landsvaka 61
milljarði króna samanborið við 53 milljarða í árslok 2010. 

Lykiltölur í þúsundum króna: Sjá viðhengi.

  -- Ársreikningi félagsins er skipt í tvo hluta, A-hluta sem inniheldur
     ársreikning rekstrarfélagsins og B-hluta sem inniheldur ársreikning
     verðbréfa-, fjárfestinga- og fagfjárfestasjóða.  Þessi framsetning á
     reikningnum er í samræmi við reglur um reikningsskil rekstrarfélaga
     verðbréfasjóða sem settar voru af Fjármálaeftirlitinu.
  -- Ársreikningurinn hefur verið endurskoðaður af KPMG sem telur að
     reikningurinn gefi glögga mynd af afkomu félagsins og sjóðanna á árinu
     2011, efnahag þess 31. desember 2011 og breytingu á handbæru fé og hreinni
     eign sjóðanna á árinu 2011, í samræmi við lög og settar
     reikningsskilareglur.

Skuldabréfa- og hlutabréfamarkaðir hafa enn ekki náð sér að fullu á strik eftir
efnahagsáföll síðustu ára.  Það setur mark sitt á starfsemi félagsins að enn
vantar mikið upp á skilvirkni og dýpt á mörkuðum.  Erfið staða á mörkuðum hefur
veruleg áhrif á rekstur sjóða Landsvaka auk mikillar óvissu í efnahagsmálum
heimsins um þessar mundir. 

Eftir að heildareignir í stýringu minnkuðu verulega í kjölfar falls bankanna í
byrjun október 2008 hafa aðstæður breyst til batnaðar. Þróunin á árinu 2011 var
sjóðum Landsvaka tiltölulega hagstæð og jukust eignir i stýringu um rúm14%. 
Stærð skuldabréfasjóða jókst þannig um 14% og stærð innlendra hlutabréfasjóða
jókst um 143%.  Markaðshlutdeild félagsins jókst á árinu og ávöxtun sjóða
félagsins var einnig vel ásættanleg miðað við hefðbundin viðmið, félagið átti
til dæmis þann verðbréfasjóð sem skilaði hæstri ávöxtun á árinu, Sparibréf
verðtryggð. 

Hagnaður varð af rekstri félagsins á árinu að fjárhæð 207 milljónir króna
samkvæmt rekstrarreikningi félagsins.  Eigið fé Landsvaka hf. í lok ársins nam
517 milljónum króna samkvæmt efnahagsreikningi.  Eiginfjárhlutfall félagsins,
sem reiknað er samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki, var 81,2% en þetta hlutfall
má ekki vera lægra en 8% samkvæmt lögum. 



Nánari upplýsingar um ársreikning Landsvaka hf. veitir Ari Skúlason,
framkvæmdastjóri Landsvaka í síma 410 7406.