2010-09-03 10:34:22 CEST

2010-09-03 10:35:22 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Vestmannaeyjabær - Fyrirtækjafréttir

Fréttatilkynning í kjölfar umfjöllunar um bréf Eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga


Í fréttum í fjölmiðlum hefur komið fram að Vestmannaeyjabær sé meðal þeirra
sveitarfélaga sem fengið hafi aðvörun frá Eftirlitsnefnd með fjármálum
sveitarfélaga vegna skuldsetningar og/eða slæmrar rekstrarafkomu og er óskað
eftir upplýsingum um það hvernig sveitarstjórn hyggist bregðast við
fjárhagsvanda sveitarfélagsins.  Vanda sem ekki er til staðar.  Að gefnu
tilefni vill Vestmannaeyjabær því taka af öll tvímæli um það að bærinn á ekki
við neinn fjárhagsvanda að stríða og þarf ekki að grípa til neinna ráðstafanna
til að rétta við rekstur sinn. Að halda slíku fram er fjarstaða og gerir það
eitt að draga úr trúnaði þeirra sem til þekkja á Eftirlitsnefndinni. 

Vestmanneyjabær telur að mikils misskilnings gæti í athugasemdum
Eftirlitsnefndarinnar og að hún hafi ekki kynnt sér rekstur og stöðu
Vestmannaeyjabæjar nægilega vel til að komast að þeirri niðurstöðu að
fjárhagsstöðu sveitarfélagsins gæti stefnt í óefni. Unnið er í því að svara
Eftirlitsnefndinni og hafa stjórnendur Vestmannaeyjabæjar þegar óskað eftir
fund með nefndinni til að fara yfir rekstur bæjarins.  Málið hefur enda þegar
valdið Vestmannaeyjabæ miklum skaða og mikilvægt að Eftirlitsnefnd með
fjármálum sveitarfélaga leiðrétti tafarlaust þann misskilning sem hún hefur
komið af stað um rekstrarvanda Vestmannaeyjabæjar. 
Rekstur Vestmannaeyjabæjar var jákvæður um 329 milljónir á síðasta ári og er
það þriðja árið í röð sem reksturinn er jákvæður. Í árslok 2009 átti
Vestmannaeyjabær handbært fé í formi bankainnistæðna upp á tæpa 3,6 milljarða
og hafði þá greitt niður skuldir fyrir rúmlega 2,5 milljarða á tveimur árum. 

Heildarskuldir og skuldbindingar Vestmannaeyjabæjar í árslok 2009 námu rúmum 7
milljörðum króna, en þar af nema skuldir við lánastofnanir einungis rúmum 1,2
milljörðum, eða um 39% af tekjum sveitarfélagsins. 1,2 milljarður af
skuldbindingum bæjarins eru fyrirfram fengnar tekjur vegna neðansjávarlagnar
sem verða tekjufærðar á móti afskriftum á næstu 35 árum.  Slíkt fyrirkomulag
var viðhaft að beiðni fjármálaráðuneytisins sem fjármagnaði stofnkostnað.  Hin
meinta skuldbinding kemur því aldrei til með að hafa áhrif á rekstur
Vestmannaeyjabæjar.  Önnur skuldbinding Vestmannaeyjabæjar er reiknuð
lífeyrisskuldbinding upp á 2,4 milljarða sem mun koma til greiðslu á næstu
50-60 árum og því fráheyrt að um bráðavanda sé að ræða.  Að  auki er
skuldbinding upp á 1,9 milljarða sem eru framtíðar leigugreiðslur til
Fasteignar sem mun falla til á næstu 24 árum. Vart þarf að geta þess að allar
greiðslur Vestmannaeyjabæjar til Fasteignar hf. eru í skilum og hluti af föstum
rekstrartölum.  Að draga slíkar skuldbindingar inn í umræðu um rekstrarvanda er
í besta falli furðulegt. 

Í bréfi Eftirlitsnefndarinnar til Vestmannaeyjabæjar kemur fram að hún hafi þá
skoðun að hlutverk sveitarfélags sé ekki að ávaxta fjármuni umfram þá sem
nauðsynlegir eru í hefðbundum rekstri en telur niðurgreiðslu skulda farsælli
fjármálastjórnun til lengri tíma litið. Vestmannaeyjabær telur að í þessari
ályktun kristallast það að nefndin hefur ekki kynnt sér rekstur bæjarins
síðustu ár.  Vestmannaeyjabær hefur einmitt síðastliðin 4 ár og þá sérstaklega
eftir bankahrun kappkostað að greiða niður sín lán við lánastofnanir og ekki
hafa verið tekin nein ný lán hjá lánastofnunum í um 5 ár. Á síðastliðnum 4 árum
hefur bærinn greitt niður lán fyrir rúma 2,5 milljarða. Það má í raun segja að
einn helsti fjárhagsvandi Vestmannaeyjabæjar á síðasta ári hafi verið sá að
bærinn fékk ekki heimild frá lánveitanda að greiða niður öll þau lán sem hann
óskaði eftir. Þeir 1,2 milljarðar sem bærin skuldaði til lánastofnanna um
áramót samanstanda fyrst og fremst af lánum sem bærin hefur ekki fengið heimild
til að greiða niður. Geta og vilji hefur hvorutveggja verið til staðar.  Án
frekari uppgræðslu lána mun Vestmannaeyjabær verða skuldlaus við lánastofnanir
eftir 7 ár. 

Árið 2009 var hanbært fé frá rekstri hjá Vestmannaeyjabæ 724 milljónir. Vart
þarf að benda Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga á þá hefur þegar verið
gert ráð fyrir bæði greiðslu til Fasteignar hf og lífeyrisskuldbindingum. 
Þetta er það fjármagn sem er afgangs til að mæta afborgunum og
fjárfestingahreyfingum, og í þessu samhengi má benda á að áætlaðar afborganir
langtímalána nema á þessu ári um 140 milljónum. 

Vestmannaeyjabær fékk fyrst upplýsingar um það í fjölmiðlum að Eftirlitsnefndin
væri að senda frá sér bréf vegna ætlaðs fjárhagsvanda okkar.  Slíkt eru
ámælisverð vinnubrögð og til þess fallið vekja upp vangaveltur um tilgang
slíkra erinda.
Aðferðir Eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga hafa haft ófyrirséðar
afleiðingar fyrir bæjarfélag sem hefur öll tök á að vinna sig hratt og
örugglega úr kreppu sem það ber enga ábyrgð á.  Á þenslu tímum greiddi
Vestmannaeyjabær niður lán og hélt að sér höndum í framkvæmdum.  Það er vægast
sagt stórfurðulegt að fá í kjölfarið ákúrur frá eftirlitsnefnd fyrir það
fyrirkomulag. 

Vinnubrögð Eftirlitsnefndar með fjárumálum sveitarfélaga eru ámælisverð og gera
það eitt að skaða ennfrekar ímynd eftirlitsstofanna á Íslandi. 



Fyrir hönd Vestmannaeyjabæjar

Sigurbergur Ármansson
Fjármálastjóri Vestmannaeyjabæjar

Elliði Vignisson
Bæjarstjóri í Vestmannaeyjum