2013-04-30 19:00:00 CEST

2013-04-30 19:00:01 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Langanesbyggð - Ársreikningur

Ársreikningur Langanesbyggðar fyrir árið 2012




Ársreikningur Langanesbyggðar fyrir árið 2012 var tekinn til fyrri umræðu í
sveitarstjórn þriðjudaginn 30. apríl 2013 og samþykkti sveitarstjórn að vísa
ársreikningnum til síðari umræðu þann 8. maí 2013. Samkvæmt
sveitarstjórnarlögum skal fjalla um ársreikninginn á tveimur fundum í
sveitarstjórn. 

Ársreikningurinn hefur að geyma ársreikning fyrir þær rekstrareiningar sem
falla undir A hluta starfsemi sveitarfélagsins og samantekinn ársreikning fyrir
alla starfsemi þess þ.e. A og B hluta, sbr. 60 gr. sveitarstjórnarlaga, nr.
138/2011. 

Til A hluta, þ.e. sveitarsjóðs, telst starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er
fjármögnuð með skatttekjum, en auk Aðalsjóðs er um að ræða Eignasjóð og
Þjónustumiðstöð. Til B hluta teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki sem að
hálfu eða meirihluta eru í eigu sveitarfélagsins, en rekstur þessara fyrirtækja
er fjármagnaður með þjónustutekjum. Fyrirtæki sem falla undir B hluta starfsemi
sveitarfélagsins eru Félagslegar íbúðir, Fráveita, Vatnsveita, Hafnarsjóður,
Naust og Fræ ehf. 

Samkvæmt rekstrarreikningi ársins 2012 námu rekstrartekjur A og B hluta 654,5
millj. kr. samanborið við 590,2 millj. kr. á árinu 2011. Hækkun milli ára nemur
því um 9,8%. 

Rekstrargjöld A og B hluta, þ.e. laun og launatengd gjöld, annar
rekstrarkostnaður og afskriftir námu á árinu 546,7 millj. kr. en voru 554,8
millj. kr. á árinu 2011. Lækkun frá fyrra ári nemur 1,5%. 

Fjármunatekjum og fjármagnsgjöldum eru sambærilegt á milli ára. Fjármagnsgjöld
umfram fjármunatekjur A og B hluta árið 2012 og árið 2011 námu 50,3 millj. kr. 

Samkvæmt sjóðstreymisyfirliti ársins 2012 nemur veltufé frá rekstri 111,2
millj. kr. samanborið við 39,7 millj. kr. á árinu 2011. 

Hagnaður ársins nemur því 57,3 millj. kr. fyrir A og B hluta, samanborið við
17,5 millj. kr. rekstrarhalla á árinu 2011. 





Frekari upplýsingar veitir:

Gunnólfur Lárusson,sveitarstjóri-sveitarstjori@langanesbyggd.is í síma 468-1220