2013-03-27 15:39:04 CET

2013-03-27 15:40:05 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Ríkisútvarpið - Fyrirtækjafréttir

Samningsgerð RÚV og Fjarskipta hf.


Ríkisútvarpið og Fjarskipti undirrituðu í dag samning til 15 ára sem felur í
sér dreifingu á tveimur stafrænum háskerpusjónvarpsrásum fyrir RÚV til allra
landsmanna. Jafnframt taka Fjarskipti að sér rekstur allra núverandi
dreifikerfa RÚV, bæði fyrir útvarp og sjónvarp. Með samningnum dregur mjög úr
þörf á fjárbindingu fyrir RÚV á umræddu tímabili og áhrifin á rekstur félagsins
verða jákvæð á tímabilinu.