|
|||
2010-12-08 17:47:57 CET 2010-12-08 17:48:56 CET REGULATED INFORMATION This message has been corrected. Click here to view the corrected message Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirÚtboð ríkisvíxla RIKV 11 0415Mánudaginn 13. nóvember kl: 11:00 fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins á ríkisvíxlum í flokki RIKV 11 0415 sem er með gjalddaga 15. apríl 2011. Lánamál ríkisins áskilja sér rétt til að samþykkja öll tilboð sem berast, að hluta eða hafna þeim öllum. Einungis aðalmiðlurum ríkisverðbréfa er heimilt að gera tilboð í útboðinu, en þeir annast einnig tilboðsgerð fyrir fjárfesta. Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að nafnvirði. Útboðinu verður þannig háttað að öll samþykkt tilboð bjóðast aðalmiðlurum á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ræður söluverðinu. Að öðru leyti er vísað í útboðsskilmála sem fylgja þessari frétt. Greiðslu- og uppgjörsdagur er miðvikudagur 15. Desember 2010. Ofangreindur flokkur verður skráður í NASDAQ OMX á Íslandi fimmtudaginn 16. desember 2010. Nánari upplýsingar veitir Oddgeir Gunnarsson, lánamálum ríkisins, í síma 569 9633. |
|||
|