2017-06-12 13:28:40 CEST

2017-06-12 13:28:40 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Reykjavíkurborg - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Reykjavíkurborg - Útboð RVK 53 1 og RVKN 35 1

Útboð 14. júní nk.

Reykjavíkurborg - Útboð RVK 53 1 og RVKN 35 1
 

Reykjavíkurborg hefur ákveðið í samræmi við samþykkt borgarráðs á fundi sínum þann 1. júní að að efna til útboðs þann 14. júní í flokkum RVK 53 1 og RVKN 35 1. Reykjavíkurborg stefnir að því að taka tilboðum að fjárhæð 5.000 milljónir króna að markaðsvirði. Reykjavíkurborg áskilur sér rétt til að hækka eða lækka útboðsfjárhæð útboðsins, taka hvaða tilboði sem er eða hafna þeim öllum.
 

Útboðið verður með því fyrirkomulagi að samþykkt tilboð í hvorum skuldabréfaflokki bjóðast á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) mun ákvarða söluverð.
 

Heildarstærð RVK 53 1 fyrir þetta útboð nemur alls 19.570 m.kr. að nafnvirði.
 

Heildarstærð RVKN 35 1 fyrir þetta útboð nemur alls 4.970 m.kr. að nafnvirði.
 

Heimild til lántöku á árinu 2017 er 8.012 m.kr.
 

Uppgjör sölu fer fram mánudaginn 19.júní 2017.
 

Arion banki, Íslandsbanki, Landsbanki og Kvika fjárfestingarbanki eru umsjónaraðilar útboðsins og hafa einir rétt á tilboðsgerð. Tilboð skulu berast fyrir kl. 16:00 miðvikudaginn 14. júní.
 

Óskað er eftir tilboðum í samræmi við útboðsskilmála í fylgiskjali:
 

Nánari upplýsingar gefur:
Birgir Björn Sigurjónsson
Fjármálastjóri Reykjavíkurborgar
Sími: 693-9321