2014-04-07 11:25:34 CEST

2014-04-07 11:26:34 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Landsbréf hf. - Breyting á stjórn/framkvæmdastjórn/endurskoðendum

Breytingar á framkvæmdastjórn Landsbréfa


Sigþór Jónsson, framkvæmdastjóri Landsbréfa hf., hefur sagt starfi sínu lausu
hjá félaginu. Á stjórnarfundi sem haldinn var fyrir opnun markaða í dag, þann
7. apríl 2014 var tekin ákvörðun um að Hermann Már Þórisson, sem gengt hefur
stöðu staðgengils framkvæmdastjóra Landsbréfa hf. verði framkvæmdastjóri
félagsins þar til annað verður ákveðið. 

Frekari upplýsingar gefur stjórnarformaður félagsins, Sigurbjörn Gunnarsson í
síma 693- 2207.