|
|||
2009-06-24 16:57:06 CEST 2009-06-24 16:58:06 CEST REGULATED INFORMATION Icelandair Group hf. - Fyrirtækjafréttir-Hlutafjáraukning hjá Travel ServiceÍ dag var undirritað samkomulag um aukningu hlutafjár í Travel Service, dótturfélagi Icelandair Group í Tékklandi. Meðeigendur Icelandair Group, Unimex Group og Roman Vik skrá sig fyrir nýju hlutafé í félaginu og auka hlut sinn úr 34% í 49,9%. Með hlutafjáraukningunni minnkar hlutur Icelandair Group úr 66% í 50,1%. Hækkunin hefur engin áhrif á rekstur Icelandair Group en eigið fé lækkar um 300 milljónir króna. „Með þessari hlutafjáraukningu er verið að styrkja stöðu Travel Service. Rekstur félagsins hefur gengið vel á þessu ári og betur en áætlanir gerðu ráð fyrir. Við núverandi aðstæður í alþjóðlegum flugrekstri skapast ýmis tækifæri til vaxtar sem félagið er að skoða. Með hlutafjáraukningunni er félagið betur í stakk búið til að styrkja stöðu sína á markaðnum í nánustu framtíð.“ segir Björgólfur Jóhannsson forstjóri Icelandair Group. Nánari upplýsingar veita: Björgólfur Jóhannsson, Forstjóri Icelandair Group Sími:896-1455 Bogi Nils Bogason, Framkv.stj Fjármála Icelandair Group Sími:665-8001 Sigþór Einarsson, Aðst.forstjóri Icelandair Group Sími:897-8363 |
|||
|