2015-01-08 15:04:54 CET

2015-01-08 15:05:57 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Reykjavíkurborg - Fyrirtækjafréttir

Útgáfuáætlun Reykjavíkurborgar fyrir fyrri hluta árs 2015


Í fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir árið 2015 kemur fram að
Reykjavíkurborg áætlar lántökur að fjárhæð 2.190 mkr. vegna framkvæmda. Gert er
ráð fyrir að lántakan verði framkvæmd með stækkun á verðtryggðum
skuldabréfaflokki RVK 53 1. Heildarstærð flokksins er nú ISK 18.690.000.000 að
nafnvirði. 

Borgarráð samþykkti á fundi sínum 8. janúar 2015 eftirfarandi
útboðsdagsetningar fyrir fyrri hluta árs 2015. 

Skuldabréfaútboð Reykjavíkurborgar verða á eftirfarandi dögum: 14. janúar, 11.
febrúar, 11. mars, 15. apríl og 6. maí. 

Tilkynnt verður um fyrirkomulag einstakra útboða í fréttakerfi NASDAQ OMX á
Íslandi a.m.k 1 virkum degi fyrir útboð. 

Reykjavíkurborg áskilur sér allan rétt til að víkja frá áætlun þessari og mun
þá tilkynna um breytingar þar að lútandi í fréttakerfi NASDAQ OMX á Íslandi. 

Nánari upplýsingar gefur:
Birgir Björn Sigurjónsson
Fjármálastjóri Reykjavíkurborgar
Sími: 411-1111