|
|||
2008-05-15 17:08:35 CEST 2008-05-15 17:09:16 CEST REGULATED INFORMATION Straumur-Burðarás Fjárfestingabanki hf. - Breyting á stjórn/framkvæmdastjórn/endurskoðendumHöskuldur Ari Hauksson lætur af störfum15. maí 2008 Höskuldur Ari Hauksson, framkvæmdastjóri Markaðsviðskipta Straums-Burðaráss fjárfestingabanka hf., hefur ákveðið að láta af störfum. "Ég tek þessa ákvörðun með hliðsjón af því að markaðsaðstæður hafa leitt af sér ákveðnar áherslubreytingar innan fyrirtækisins og sóknarfærin eru ekki þau sömu og áður," segir Höskuldur. Straumur þakkar Höskuldi fyrir vel unnin störf og óskar honum velfarnaðar. Nánari upplýsingar veitir: Ólafur Teitur Guðnason fjölmiðlafulltrúi s. 858 6778 netfang: olafur.gudnason@straumur.net |
|||
|