2010-10-28 13:12:00 CEST

2010-10-28 13:13:32 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Reykjanesbær - Fyrirtækjafréttir

Endurskoðuð fjárhagsáætlun


Endurskoðuð fjárhagsáætlun Reykjanesbæjar fyrir árið 2010 var lögð fyrir
bæjarráð fimmtudaginn 28. október 2010. 

Talsverðar breytingar eru gerðar í endurskoðaðri fjárhagsáætlun Reykjanesbæjar
fyrir árið 2010. Þessar breytingar helgast aðallega af 600 m.kr tekjulækkun þar
sem atvinnutekjur hafa ekki skilað sér. Þá eru færðar inn. skuldbindingar utan
efnahags inn í efnahag. Meðfylgjandi því fylgir að húsaleiga sem hefur öll
farið inn í rekstrarkostnað er að hluta til tekin út, og færð sem afborgun á
langtímaskuldbindingu, vexti og rekstrarkostnað. Á móti kemur að innri leiga er
reiknuð á leigðar fasteignir og leigutekjur reiknaðar á móti í eignasjóð. 
Jafnframt þessum breytingum eru settar inn í fjárhagsáætlunina breyting sem
mörg sveitarfélög gerðu í fyrra s.s. eignamyndun af lóðum og lendum, sem og
endurmat á félagslegum íbúðum. 

Rekstrarkostnaður bæjarsjóðs hækkar um 339,1 m.kr. frá upphaflegri áætlun
samkvæmt endurskoðaðri fjárhagsáætlun 2010. Afskriftir eru hækkaðar um 215,1
m.kr. vegna breytinga á reikningsliðum með leigðar fasteignir. Áætlað er að
tekjur ársins verði 369,9 m.kr. hærri en skv. upphaflegri áætlun m.a. vegna
breytinga á reikningsskilum á langtímahúsaleigu. Samkvæmt þessu er gert ráð
fyrir að rekstrarniðurstaða bæjarsjóðs, fyrir afskriftir og fjármagnsliði
(svokölluð ebidta)  verði jákvæð um 143,1 m.kr. Endurskoðuð áætlun gerir ráð
fyrir að fjármagnsliðir verði neikvæðir um 77,8 m.kr. 

Áætlað er að rekstrarniðurstaða bæjarsjóðs verði í heild neikvæð um 199,7 m.kr.
í lok árs.