|
|||
2009-01-30 17:09:37 CET 2009-01-30 17:10:38 CET REGULATED INFORMATION Nýherji hf. - Hluthafafundir- Aðalfundur Nýherja verður haldinn 6. febrúar 2009Aðalfundur Nýherja hf. verður haldinn föstudaginn 6. febrúar 2009 í ráðstefnusal félagsins, Borgartúni 37, og hefst fundurinn kl. 16:00. Á dagskrá fundarins verða: 1. Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt gr. 4.5 í samþykktum félagsins. 2. Tillaga um heimild félagsins til kaupa á eigin hlutum, sbr. 55 gr. hlutafélagalaga. Aðalfundur Nýherja haldinn 6. febrúar 2009 samþykkir heimild til handa stjórn félagsins til að kaupa allt að 10% af nafnverði hlutafjár félagsins, sbr. VIII. kafla laga nr. 2/1995 um hlutafélög. Kaupgengi hluta má ekki vera meira en 20% hærra eða lægra en síðasta skráða gengi á Kauphöll Íslands. Gildistími heimildarinnar er allt að átján mánuðir. 3. Tillaga um ráðstöfun hagnaðar: Stjórn félagsins leggur til að greiddar verði 0,20 kr. á hlut í arð til hluthafa vegna rekstrarársins 2008 eða kr. 55.122.155. Að öðru leyti er vísað til ársreikningsins um ráðstöfun hagnaðar og aðrar breytingar á eiginfjárreikningum. Arður verður greiddur út þann 30. mars næstkomandi í samræmi við eign hluthafa eins og hún er á arðsréttindadegi miðvikudaginn 11. febrúar. Viðskipti án arðs hefjast mánudaginn 9. febrúar 2009. Greiðsla arðs fer fram eftir að 30 dagar eru liðnir frá arðsréttindadegi sem er í samræmi við greiðsluáætlanir félagsins. 4. Tillaga um þóknun til stjórnarmanna: Fyrir liggur tillaga um að laun stjórnarmanna lækki um 10% og að laun til stjórnarmanna og varamanna þeirra í stjórn Nýherja hf. fyrir árið 2008 verði eftirfarandi: Formaður kr. 2.550.000, Meðstjórnendur kr. 850.000, Varamaður kr. 63.000 fyrir hvern fund. 5. Önnur mál, löglega upp borin. Atkvæðaseðlar og fundargögn verða afhent á fundarstað. Hluthafar sem ekki geta sótt fundinn, en hyggjast gefa umboð, verða að gera það skriflega. Ársreikningur og tillögur sem lagðar verða fram á fundinum verða settar á vef félagsins, www.nyherji.is, þann 30. janúar nk. Framboð til stjórnar Nýherja hf. á aðalfundi félagsins 6. febrúar 2009. Eftirtaldir einstaklingar hafa gefið kost á sér til setu í stjórn Nýherja, sem kjörin verður á aðalfundi 6. febrúar næstkomandi, en þeir eiga allir setu í fráfarandi stjórn. STJÓRN Árni Vilhjálmsson, kt: 110532-3509, Hlyngerði 10, 108 Reykjavík. Störf: Núverandi störf eru stjórnarformennska og stjórnarseta í hlutafélögunum HB Grandi hf., Hampiðjan hf., Hvalur hf., Fiskveiðahlutafélagið Venus hf., Nýherji hf. o.fl. Gegndi starfi prófessors við Viðskiptadeild Háskóla Íslands auk ýmissa annarra starfa og verkefna. Menntun: Cand. oecon. frá Viðskiptadeild Háskóla Íslands og AM í hagfræði frá Harvard háskóla. Eign og tengsl: Hlutafjáreign stjórnarmanns: kr. 400.000 Engin hagsmunatengsl eru við viðskiptaaðila eða samkeppnisaðila. Stjórnarformaður í Væntingu hf. sem á 28,5% hlutafjár í Nýherja hf. Benedikt Jóhannesson, kt. 040555-2699, Selvogsgrunni 27, 104 Reykjavík. Störf: Núverandi starf er framkvæmdastjóri Talnakönnunar hf. og Heims hf., auk stjórnarformennsku og stjórnarsetu í hlutafélögum svo sem Nýherja hf., N1 og NBT hf. Fyrri stjórnarstörf í Sjóvá-Almennum tryggingum hf. o. fl. Menntun: Ph.D í tölfræði og stærðfræði , MS í Tölfræði , BS í stærðfræði og hagfræði. Eign og tengsl: Hlutafjáreign stjórnarmanns: kr. 13.343.947 Engin hagsmunatengsl eru við stóra viðskiptaaðila eða samkeppnisaðila. Stjórnarmaður í Áning-fjárfestingar ehf. sem á 13,3% hlutafjár í Nýherja hf. Guðmundur Jóh. Jónsson, kt: 041159 2439, Álfhólsvegi 101, 200 Kópavogur. Störf: Framkvæmdastjóri Varðar tryggingar hf., núverandi stjórnarmaður í Nýherja. Menntun: Viðskiptafræðingur frá Seattle University, MBA frá Edinborgarháskóla. Eign og tengsl: Hlutafjáreign stjórnarmanns: kr. 534.218 Engin hagsmunatengsl eru við viðskiptaaðila eða samkeppnisaðila. VARASTJÓRN Jafet S. Ólafsson, kt: 290451-4699, Langagerði 26, 108 Reykjavík. Störf: Framkvæmdastjóri hjá Veigar fjárfestingafélagi. Var framkvæmdastjóri VBS fjárfestingabanka í 10 ár, áður Verbréfastofan. Menntun: Stúdent frá Verslunarskóla Íslands 1973. Viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands 1977. Eign og tengsl: Hlutafjáreign : kr. 5.760.205 Engin hagsmunatengsl eru við viðskiptaaðila eða samkeppnisaðila. |
|||
|