2014-02-06 09:58:44 CET

2014-02-06 09:59:44 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Icelandair Group hf. - Fyrirtækjafréttir

Flutningatölur janúar 2014


Í janúar nam fjöldi farþega í millilandaflugi 125 þúsund og fjölgaði þeim um
15% miðað við janúar á síðasta ári.  Framboð í millilandafluginu var aukið um
15%. Sætanýtingin var 70,5% og jókst um 1,6 prósentustig í mánuðinum á milli
ára. 

Fjöldi farþega í innanlands- og Grænlandsflugi voru 20 þúsund í janúar og
fækkaði um 5%.  Framboð í janúar var 7% lægra en í janúar á síðasta ári og
sætanýting var 68,2% samanborið við 66,1% í janúar 2012. Seldir blokktímar í
leiguflugi voru 8% færri en í janúar á síðasta ári. Fraktflutningar jukust um
7% á milli ára. Seldar gistinætur hjá Flugleiðahótelunum jukust um 10% á milli
ára. Herbergjanýting var 51,4%, eða 4,8 prósentustigum hærri en í janúar 2013. 



MILLILANDAFLUG                      JAN 14   JAN 13   BR. (%)
-------------------------------------------------------------
Fjöldi farþega                     124.745  108.920       15%
Sætanýting                           70,5%    68,9%   1,6 ppt
Framboðnir sætiskm. (ASK'000.000)    519,2  451.995       15%
INNANLANDSFLUG OG GRÆNLANDSFLUG     JAN 14   JAN 13   BR. (%)
-------------------------------------------------------------
Fjöldi farþega                      20.353   21.460       -5%
Sætanýting                           68,2%    66,1%   2,1 ppt
Framboðnir sætiskm. (ASK'000.000)      9,4   10.069       -7%
LEIGUFLUG                           JAN 14   JAN 13   BR. (%)
-------------------------------------------------------------
Flugvélanýting                      100,0%    75,0%  25,0 ppt
Seldir blokktímar                    2.487    2.704       -8%
FRAKTFLUTNINGAR                     JAN 14   JAN 13   BR. (%)
-------------------------------------------------------------
Framboðnir tonnkm. (ATK´000)        14.207   13.439        6%
Seldir tonnkm. (FTK´000)             7.981    7.451        7%
HÓTEL                               JAN 14   JAN 13   BR. (%)
-------------------------------------------------------------
Framboðnar gistinætur               22.940   22.940        0%
Seldar gistinætur                   11.788   10.694       10%
Herbergjanýting                      51,4%    46,6%   4,8 ppt



Nánari upplýsingar veita:

Bogi Nils Bogason framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group s: 665-8801
Íris Hulda Þórisdóttir forstöðumaður fjárfestatengsla Icelandair Group s:
840-7010