|
|||
![]() |
|||
2016-02-22 09:01:02 CET 2016-02-22 09:01:02 CET SÄÄNNELTY TIETO Fjarskipti hf. - FyrirtækjafréttirFjarskipti hf. : Reglubundin tilkynning um kaup Fjarskipta á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlunÍ viku 7 keyptu Fjarskipti hf. 100.000 eigin hluti að kaupverði 4.425.000 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir: Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð (gengi) Kaupverð (kr.) -------------------------------------------------------------------- 18.2.2016 09:30 100.000 44,25 4.425.000 -------------------------------------------------------------------- Samtals 100.000 4.425.000 Fjarskipti áttu 9.095.164 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 9.195.164 eigin hluti eða sem nemur 2,74% af útgefnum hlutum í félaginu. Viðskiptin eru samkvæmt endurkaupaáætlun Fjarskipta sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 18. febrúar 2016. Fjarskipti hafa keypt samtals 100.000 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,03% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 4.425.000 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 2.188.184 hlutum eða sem nemur 0,65% af útgefnum hlutum í félaginu, en þó ekki meira en 100.000.000 kr. að kaupverði. Endurkaupaáætlunin er í gildi til 17. mars 2016 nema ef kaupum samkvæmt henni verður lokið áður. Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005, sem ber heitið "Viðskipti með eigin bréf í endurkaupaáætlunum og verðjöfnun fjármálagerninga." Nánari upplýsingar veitir: Gunnhildur Ásta Guðmundsdóttir, fjarfestatengsl@vodafone.is [HUG#1987909] |
|||
|