2012-10-23 16:06:29 CEST

2012-10-23 16:08:14 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Össur hf. - Ársreikningur

Össur - Þriðji ársfjórðungur 2012


HÆG SALA Í BANDARÍKJUNUM HEFUR ÁHRIF Á VÖXT

Sala  -  Söluvöxtur  var  2%, mælt  í  staðbundinni  mynt.  Heildarsalan nam 99
milljónum  Bandaríkjadala samanborið við 101 milljón  dala á þriðja ársfjórðungi
2011. Áframhaldandi eftirlit endurgreiðsluaðila hefur hægt á sölu á stoðtækjum í
Bandaríkjunum  og  hefur  áfram  áhrif  á  heildarsölu.  Enginn söluvöxtur var í
stoðtækjum  eða  0%, mælt  í  staðbundinni  mynt  en  söluvöxtur  í  spelkum  og
stuðningsvörum  var  3%,  mælt í  staðbundinni mynt.  Enn einn fjórðunginn sýnir
Össur í Asíu mjög góðan vöxt eða 24%, mælt í staðbundinni mynt.

Arðsemi  - Reksturinn gengur vel og sýnir  góða arðsemi. Annan fjórðunginn í röð
vex sala á spelkum og stuðningsvörum á meðan sala á stoðtækjum dregst saman, sem
hefur  neikvæð áhrif  á framlegð.  Þrátt fyrir  breytta vörusamsetningu og minni
sölu   helst   framlegðarhlutfallið   stöðugt   sem   staðfestir  góðan  árangur
framleiðslunnar    í   Mexíkó   og   jákvæð   áhrif   annarra   verkefna   innan
framleiðsludeildar. Framlegðin nam 61,7 milljónum Bandaríkjadala eða 63% af sölu
sem er sama hlutfall og á þriðja ársfjórðungi 2011.

EBITDA  nam 18 milljónum Bandaríkjadala  eða 19% af sölu,  samanborið við 20% af
sölu  á  sama  tímabili  2011. EBITDA  er  lægri  vegna  minni  sölu og aukinnar
fjárfestingar í rannsóknar- og þróunarstarfi.

Jón Sigurðsson, forstjóri:"Niðurstöður  þriðja  ársfjórðungs  eru  undir  okkar  væntingum og hafa áhrif á
áætlun  fyrir árið  í heild.  Eftirlit endurgreiðsluaðila  í Bandaríkjunum hefur
haft  meiri áhrif á söluna  en stjórnendur gerðu ráð  fyrir. Samt sem áður hefur
fjórðungurinn  líka verið mjög  ánægjulegur þar sem  Oscar Pistorius skráði nafn
sitt   í   sögubækurnar   sem  fyrsti  aflimaði  keppandinn  á  Ólympiuleikunum.
Frammistaða  Oscars og  fleiri afreksíþróttamanna  á Ólympíumóti fatlaðra veitti
okkur  líka innblástur og sýndi umheiminum að  fötlun þarf ekki að hindra fólk í
að  ná markmiðum sínum.  Við erum stolt  yfir því að  vera þátttakendur í þeirri
vegferð."

Stoðtækjamarkaðurinn  í Bandaríkjunum  -  Á  þessu ári  hefur aukið eftirlit frá
endurgreiðsluaðilum  eins og Medicare haft  veruleg áhrif á stoðtækjamarkaðinn í
Bandaríkjunum.   Það  hefur  skapað  óvissu  á  markaðnum  og  leitt  til  minni
eftirspurnar  eftir dýrari  vörum. Samkvæmt  könnun samtaka stoðtækjaverkstæða í
Bandaríkjunum  (AOPA  -  American  Orthotic  & Prosthetic Association), eru 75%
þeirra verkstæða sem svöruðu könnuninni í eftirlitsferli og jafnframt segja 81%
svarenda að þessar aðgerðir hafi mikil áhrif á starfsemina. Þetta eftirlit hefur
haft  meiri áhrif á markaðinn  en stjórnendur gerðu upphaflega  ráð fyrir og mun
þeirra áhrifa gæta fram á næsta ár.

Ólympíumót  fatlaðra - Team Össur náði mjög góðum árangri á Ólympíumóti fatlaðra
núna  í haust. Hópurinn samanstóð af  mörgum fremstu íþróttamönnum heims og vann
hann   samtals  til  21 verðlauna  (6  gullverðlauna,  7 silfurverðlauna  og  8
bronsverðlauna)  og setti að auki 6 heimsmet.  Af þeim aflimuðu afreksmönnum sem
komust í úrslit notuðu 2/3 fætur frá Össuri, til dæmis Flex-foot Cheetah.

Áætlun 2012 - Vegna neikvæðra markaðsaðstæðna á stoðtækjamarkaði í Bandaríkjunum
og  minni sölu þar  gera stjórnendur ráð  fyrir því að  niðurstöður ársins verði
undir áður birtri áætlun fyrir árið 2012 um innri söluvöxt á bilinu 4-6%, mælt í
staðbundinni  mynt,  og  EBITDA  leiðrétt  á bilinu 20-21% af veltu. Endurskoðuð
áætlun  gerir ráð fyrir innri söluvexti á bilinu 2-3%, mælt í staðbundinni mynt,
og EBITDA leiðrétt á bilinu 18-19% af veltu.


Símafundur á morgun, miðvikudaginn 24. október, kl. 10:00

Á  morgun, miðvikudaginn  24. október, verður  haldinn símafundur  þar sem farið
verður  yfir niðurstöður ársfjórðungsins. Fundurinn hefst kl. 10:00 GMT / 12:00
CET.   Á fundinum  munu þeir  Jón Sigurðsson,  forstjóri, og Hjörleifur Pálsson,
fjármálastjóri, kynna afkomu félagsins og svara spurningum. Fundurinn fer fram á
ensku   og   verður   hægt   að   fylgjast   með   honum  á  netinu  á  slóðinni
www.ossur.com/investors

Símanúmer til að taka þátt í fundinum eru:
Evrópa: 44 (0) 1452 555131 or + 46(0)8 506 307 79
Bandaríkin: + 1 866 682 8490
Ísland: 800 9300
Athugið að þetta yfirlit nær aðeins yfir helstu þætti uppgjörsins. Tilkynningu í
fullri lengd á ensku er að finna á www.ossur.com/investors

[HUG#1651582]