2009-07-28 06:15:00 CEST

2009-07-28 06:17:03 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Össur hf. - Ársreikningur

Össur hf. - Uppgjör fyrir annan ársfjórðung 2009



Helstu niðurstöður fyrir annan ársfjórðung 2009

  * Sala var 81,3 milljónir Bandaríkjadala, dróst saman um 3% mælt í
    staðbundinni mynt, eða 12% í USD
  * EBITDA var 17,0 milljónir Bandaríkjadala, dróst saman um 11%
  * EBITDA hlutfall var 21%, sem er sama hlutfall og fyrir sama
    tímabil í fyrra
  * Hagnaður tímabilsins var 3,5 milljónir Bandaríkjadala, samanborið
    við 3,9 milljónir á sama tímabili árið 2008
  * Hagnaður á hlut að teknu tilliti til kauprétta var 0,83 bandarísk
    sent, samanborið við 0,93 sent á sama tímabili í fyrra
  * Hagnaður að viðbættum afskriftum á útistandandi hlut, að teknu
    tilliti til kauprétta, var 3,2 bandarísk sent, samanborið við 2,4
    á sama tímabili í fyrra

Helstu niðurstöður fyrir fyrstu sex mánuði ársins 2009

  * Sala var 158,5 milljónir Bandaríkjadala, dróst saman um 3% mælt í
    staðbundinni mynt, eða 12% í USD
  * EBITDA var 29,8 milljónir Bandaríkjadala, dróst saman um 29%
  * EBITDA hlutfall var 19%, samanborið við 23% á sama tímabili í
    fyrra
  * Hagnaður tímabilsins var 11,1 milljón Bandaríkjadala, samanborið
    við 10,6 milljónir á sama tímabili árið 2008
  * Hagnaður á hlut að teknu tilliti til kauprétta var 6,84 bandarísk
    sent, jókst um 45%
  * Hagnaður að viðbættum afskriftum á útistandandi hlut, að teknu
    tilliti til kauprétta, var 11,92 bandarísk sent, jókst um 21%

Jón Sigurðsson, forstjóri:"Efnahagsþrengingar á öllum okkar helstu  mörkuðum hafa haft áhrif  á
sölu og  viðskiptavinir  okkar  fara varfærnislega  vegna  óvissu  um
ástandið.  Samningar  við  suma  birgja  í  Evrópu  hafa  ekki  verið
endurnýjaðir sem hefur tímabundið  neikvæð áhrif á  sölu í Evrópu  en
ekki arðsemi.  Skýr stefna  í sölu  og markaðsmálum  í  Bandaríkjunum
gefur von um jákvæða  þróun. Ný útgáfa  af rafeindastýrða hnénu  RHEO
KNEE II sem og staðfesting á að rafeindastýrði fóturinn PROPRIO  FOOT
hahfi verið samþykktur inn í endurgreiðslukerfið í Bandaríkjunum  eru
mikilvægir áfangar fyrir framtíð bionic vörulínunnar."


The press release including tables, the Investor Presentation Q2 2009
and the Financial Statement Q2 2009 can be downloaded from the
following links: