2014-06-12 13:45:00 CEST

2014-06-12 13:45:01 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Niðurstaða útboðs ríkisvíxla RIKV 14 0915 OG RIKV 14 1215


Útboð á ríkisvíxlum í flokkum RIKV 14 0915 og RIKV 14 1215 með
tilboðsfyrirkomulagi fór fram hjá Lánamálum ríkisins kl. 11:00 í dag. 

Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt tilboð buðust bjóðendum á sama
verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ákvarðaði söluverðið.
Vaxtaprósenta er reiknuð út miðað við flata vexti og dagar taldir sem raundagar
miðað við 360 daga ár (Actual/360). 

                    Helstu niðurstöður útboðsins eru þessar:

RIKV 14 0915:

Alls bárust 10 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 4.544 m.kr. að nafnverði.
Tilboðum var tekið fyrir 4.229 m.kr. að nafnverði á verðinu 98,962 (flatir
vextir 4,15%). 

RIKV 14 1215:

Alls bárust 6 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 585 m.kr. að nafnverði.
Tilboðum var tekið fyrir 385 m.kr. að nafnverði á verðinu 98,018 (flatir vextir
4,00%).