|
|||
![]() |
|||
2015-11-25 19:23:29 CET 2015-11-25 19:23:29 CET REGLAMENTUOJAMA INFORMACIJA HB Grandi hf. - ÁrsreikningurUppgjör HB Granda hf. á þriðja ársfjórðungi 2015-- Rekstrartekjur samstæðunnar á þriðja ársfjórðungi voru 56,2 m€ og 166,6 m€ á fyrstu níu mánuðum ársins (3F 2014: 68 ,3 m€, fyrstu níu mánuðum 2014: 155,6 m€) -- EBITDA nam 15,6 m€ á þriðja ársfjórðungi og 46,9 m€ á fyrstu níu mánuðum ársins (3F 2014: 26,4 m€, fyrstu níu mánuðum ársins 2014: 45,0 m€) -- Hagnaður á þriðja ársfjórðungi var 9,1 m€ og á fyrstu níu mánuðum ársins 31,2 m€ (3F 2014: 20,0 m€, fyrstu níu mánuði 2014: 30,6 m€) -- Handbært fé frá rekstri nam 26,6 m€ á fyrstu níu mánuðum ársins (fyrstu níu mánuðir ársins 2014: 14,9 m€) -- Birgðir aukast um 15,5 m€ frá áramótum og liggur meginskýringin í árstíðasveiflum. -- Innflutningsbann sjávarafurða til Rússlands hefur haft og mun hafa mikil áhrif á starfsemi félagsins og afkomu þess, sérstaklega á Vopnafirði, gangi það að fullu eftir. Um 17% tekna félagsins komu frá rússneskum aðilum árið 2014. Erfitt er að meta fjárhagsleg áhrif þessa á HB Granda hf. en gróflega áætlað munu tekjur félagsins lækka um u.þ.b. 10-15 milljónir evra á ársgrundvelli. Árið 2014 námu tekjur félagsins 215 milljónum evra. Félagið á nú um 2,4 milljónir evra í útistandandi kröfum í Rússlandi. Rekstur fyrstu níu mánaða ársins 2015 Rekstrartekjur HB Granda hf. á fyrstu níu mánuðum ársins 2015 námu 166,6 m€, samanborið við 155,6 m€ árið áður. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) var 46,9 m€ eða 28,2% af rekstrartekjum, en var 45,0 m€ eða 28,9% árið áður. Áhrif fjáreignatekna og fjármagnsgjalda voru neikvæð um 1,2 m€, en voru neikvæð um 0,9 m€ á sama tíma árið áður. Áhrif hlutdeildarfélaga voru neikvæð um 2,9 m€, en voru jákvæð um 3,7 m€ árið áður. Helstu skýringar eru erfiðleikar í laxeldi í Síle. Hagnaður fyrir tekjuskatt var 37,9 m€ og hagnaður tímabilsins var 31,2 m€. Efnahagur Heildareignir félagsins námu 387,3 m€ í lok september 2015. Þar af voru fastafjármunir 305,7 m€ og veltufjármunir 81,6 m€. Eigið fé nam 231,8 m€ og eiginfjárhlutfall í lok september var 59,9%, en var 59,7% í lok árs 2014. Heildarskuldir félagsins voru í septemberlok 155,5 m€. Sjóðstreymi Handbært fé frá rekstri nam 26,6 m€ á tímabilinu, en nam 14,9 m€ á sama tíma fyrra árs. Fjárfestingarhreyfingar námu 29,3 m€, þar af nam fjárfesting vegna nýrra skipa 24,1 m€. Fjármögnunarhreyfingar námu 17,3 m€ og var lántaka umfram afborganir langtímalána 13,4 m€. Handbært fé lækkaði því um 20,0 m€ og var í lok september 4,7 m€. Meginniðurstöður færðar til íslenskra króna Séu niðurstöður rekstrarreiknings reiknaðar til íslenskra króna á meðalgengi fyrstu níu mánaða ársins 2015 (1 evra = 147,59 kr) verða tekjur 24,6 milljarðar króna, EBITDA 6,9 milljarðar og hagnaður 4,6 milljarðar. Séu niðurstöður efnahagsreiknings reiknaðar til íslenskra króna á gengi 30. september 2015 (1 evra = 142,37 kr) eru eignir samtals 55,1 milljarðar króna, skuldir 22,1 milljarðar og eigið fé 33,0 milljarðar. Skipastóll og afli Venus NS 150 kom til landsins í lok maí og hefur skipið staðist allar væntingar. Skipið er fyrsta skipið af fimm sem samið hefur verið um smíði á við tyrknesku skipasmíðastöðina Celiktrans Deniz Insaat Ltd. Víkingur AK 100 er svo væntanlegur til landsins seinni hluta desembermánaðar. Á fyrstu níu mánuðum ársins 2015 var afli skipa félagsins 38 þúsund tonn af botnfiski og 113 þúsund tonn af uppsjávarfiski. Kynningarfundur þann 26. nóvember 2015 Opinn kynningarfundur um afkomu félagsins á þriðja ársfjórðungi verður haldinn fimmtudaginn 26. nóvember klukkan 08:30 í höfuðstöðvum félagsins að Norðurgarði 1. Vilhjálmur Vilhjálmsson forstjóri mun kynna uppgjörið og svara spurningum. Samþykkt árshlutareiknings Árshlutareikningur var samþykktur á stjórnarfundi HB Granda hf. 25. nóvember 2015. Árshlutauppgjör HB Granda hf. er í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS – International Financial Reporting Standards). Nánari upplýsingar Nánari upplýsingar veitir Vilhjálmur Vilhjálmsson forstjóri, sími 858-1007. |
|||
|