2016-04-11 17:31:01 CEST

2016-04-11 17:31:01 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Útboð ríkisvíxla RIKV 16 1017


Miðvikudaginn 13. apríl kl. 11:00 fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins á
ríkisvíxlum í flokknum RIKV 16 1017 sem er með gjalddaga 17. október 2016. 

Lánamál ríkisins áskilja sér rétt til að samþykkja öll tilboð sem berast, að
hluta eða hafna þeim öllum. Einungis aðalmiðlurum ríkisverðbréfa er heimilt að
gera tilboð í útboðinu, en þeir annast einnig tilboðsgerð fyrir fjárfesta.
Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að nafnvirði. 

Útboðinu verður þannig háttað að öll samþykkt tilboð bjóðast aðalmiðlurum á
sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ræður söluverðinu. Að
öðru leyti er vísað í útboðsskilmála sem fylgja þessari frétt. 

Greiðslu- og uppgjörsdagur er föstudagurinn 15. apríl 2016.

Sótt verður um að RIKV 16 1017 verði tekinn til viðskipta í NASDAQ á Íslandi
föstudaginn 15. apríl 2016. 

Nánari upplýsingar veitir Oddgeir Gunnarsson, Lánamálum ríkisins, í síma 569
9635.