2016-04-11 17:56:12 CEST

2016-04-11 17:56:12 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Reitir fasteignafélag hf. - Breytingar á eigin hlutum félags

REITIR: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Í 14. viku 2016 keypti Reitir fasteignafélag hf. 988.000 eigin hluti fyrir
85.530.400 kr. eins og hér segir: 

Dagsetnin  Tími   Keyptir       Viðskipta-v    Kaupverð       Eigin hlutir eftir
g                  hlutir               erð                            viðskipti
--------------------------------------------------------------------------------
5.4.2016   12:08       350.000           87  30.450.000                1.050.000
5.4.2016   12:09        64.000         86,9   5.561.600                1.114.000
5.4.2016   12:09        80.000         86,7   6.936.000                1.194.000
6.4.2016   13:11       350.000         86,2  30.170.000                1.544.000
6.4.2016   13:11       144.000         86,2  12.412.800                1.688.000

Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurnýjaða
endurkaupaáætlun félagsins sem hófst þann 16. mars 2016, sbr. tilkynningu til
Kauphallar þann 15. mars 2016. 

Reitir hafa nú keypt samtals 1.688.000 hluti í félaginu sem samsvarar 10,11% af
þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð
hinna keyptu hluta nemur samtals 144.680.400 krónum. Reitir eiga nú samtals
0,41% af heildarhlutafé félagsins. 

Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 16.700.000 hlutir og
fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 1.500 milljónir króna. Framkvæmd
endurkaupaáætlunar lýkur þegar öðru hvoru framangreindu hefur verið náð, eða á
aðalfundardegi félagsins 2017. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við
hlutafélagalög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð nr. 630/2005.