|
|||
2014-07-02 20:41:34 CEST 2014-07-02 20:42:07 CEST REGULATED INFORMATION Fjarskipti hf. - FyrirtækjafréttirFjarskipti hf.: Ákvörðun PFS í máli Vodafone og NovaPóst- og fjarskiptastofnun (PFS) hefur heimilað Vodafone og Nova að samnýta tíðniheimildir, komi til stofnunar nýs rekstrarfélags um farsímakerfi fyrirtækjanna. Samanber fyrri tilkynningu Fjarskipta hf., dags. 12. nóvember 2013, hefur um hríð verið stefnt að stofnun slíks félags en sótt var um leyfi til rekstursins til bæði PFS og Samkeppniseftirlitsins. Ákvörðunar Samkeppniseftirlitsins er nú beðið. Í kjölfar hennar verður ákveðið hvort af stofnun samrekstrarfélagsins verður. Nánari upplýsingar verða veittar eftir því sem málinu vindur fram. [HUG#1812031] |
|||
|