|
|||
2016-09-19 10:00:32 CEST 2016-09-19 10:00:32 CEST REGULATED INFORMATION Fjarskipti hf. - FyrirtækjafréttirFjarskipti hf. : Reglubundin tilkynning um kaup Fjarskipta á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlunÍ viku 37 keyptu Fjarskipti hf. 243.636 eigin hluti að kaupverði 11.671.128 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir: Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð (gengi) Kaupverð (kr.) -------------------------------------------------------------------- 13.09.2016 10:14 158.000 48,05 7.591.900 -------------------------------------------------------------------- 14.09.2016 14:12 79.000 47,65 3.764.350 -------------------------------------------------------------------- 15.09.2016 13:31 6.636 47,45 314.878 -------------------------------------------------------------------- Samtals 243.636 11.671.128 -------------------------------------------------------------------- Er hér um að ræða kaup Fjarskipta á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 1. júní 2016. Fjarskipti áttu 7.714.071 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 7.957.707 eigin hluti eða sem nemur 2,92% af útgefnum hlutum í félaginu. Fjarskipti hafa keypt samtals 5.789.007 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 2,12% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 258.824.170 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 6.734.000 hlutum eða sem nemur 2,5% af útgefnum hlutum í félaginu, en þó ekki meira en 300.000.000 kr. að kaupverði. Endurkaupaáætlunin er í gildi til 30. september 2016 nema ef kaupum samkvæmt henni verður lokið áður. Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005, sem ber heitið "Viðskipti með eigin bréf í endurkaupaáætlunum og verðjöfnun fjármálagerninga." Nánari upplýsingar veitir: Gunnhildur Ásta Guðmundsdóttir, fjarfestatengsl@vodafone.is [] |
|||
|