2016-09-19 11:07:46 CEST

2016-09-19 11:07:46 CEST


SÄÄNNELTY TIETO

Islanti
Sjóvá-Almennar tryggingar hf - Breytingar á eigin hlutum félags

Reglubundin tilkynning Sjóvá um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun



Í viku 37 keypti Sjóvá-Almennar tryggingar hf. (Sjóvá) 1.043.654 eigin hluti að
kaupverði 13.569.218 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir: 

Dagsetning   Tími  Keyptir hlutir  Viðskiptaverð (gengi)  Kaupverð (kr.)
------------------------------------------------------------------------
------------------------------------------------------------------------
13.09.2016  09:30          19.066                  13,00         247.858
13.09.2016  09:32         400.000                  13,00       5.200.000
------------------------------------------------------------------------
14.09.2016  14:11         605.522                  13,00       7.871.786
------------------------------------------------------------------------
16.09.2016  14:01          19.066                  13,09         249.574
------------------------------------------------------------------------
   Samtals              1.043.654                             13.569.218
------------------------------------------------------------------------



Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun
félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 9. júní 2016. 

Sjóvá átti 21.127.746 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum
22.171.400 eigin hluti eða sem nemur 1,42% af útgefnum hlutum í félaginu. 

Sjóvá hefur keypt samtals 12.255.627 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem
nemur 0,78% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra
143.232.862 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 25.000.000
hluta eða sem nemur 1,6% af útgefnum hlutum í félaginu, en þó ekki meira en
300.000.000 kr. að kaupverði. Endurkaupaáætlunin er í gildi til 30. september
2016 nema ef kaupum samkvæmt henni verður lokið áður. 

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um
hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og
markaðssvik nr. 630/2005, sem ber heitið „Viðskipti með eigin bréf í
endurkaupaáætlunum og verðjöfnun fjármálagerninga.“ 



Nánari upplýsingar veitir:

Hermann Björnsson, forstjóri s. 440-2000