2014-03-03 16:35:04 CET

2014-03-03 16:35:27 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Íslandsbanki hf. - Fyrirtækjafréttir

CORRECTION: Islandsbanki hf. : Flokkar sértryggðra skuldabréfa stækkaðir


This is a correction of the announcement from 16:05 03.03.2014 GMT. Reason for
the correction: Röng upphæð var í fyrri tilkynningu um stækkun á flokknum ISLA
CBI 24, hún átti að vera 270.000.000 kr. en ekki 264.000.000 kr.

Íslandsbanki hf. hefur í dag lokið útboði á útistandandi flokkum verðtryggðra
sértryggðra skuldabréfa sem skráðir eru á NASDAQ OMX Iceland. Flokkurinn ISLA
CBI 19 var stækkaður um 1.070.000.000 kr. á ávöxtunarkröfunni 3,20% en ISLA CBI
24 um 270.000.000 kr. á ávöxtunarkröfunni 3,24%.

Heildarstærð ISLA CBI 19 útgáfunnar er nú orðin 7,70 ma. kr. og ISLA CBI 24 er
orðin 8,74 ma. kr. Alls hefur Íslandsbanki gefið út fimm flokka sértryggðra
skuldabréfa samtals að upphæð 25,93 ma. kr. frá fyrstu útgáfu bankans á slíkum
bréfum í desember 2011.

Bréfin voru seld til breiðs hóps fagfjárfesta. Heildareftirspurnin í útboðinu
var 1,70 ma. kr., en 79% tilboða var tekið. Stefnt er á að bréfin verði tekin
til viðskipta í NASDAQ OMX Iceland þann 7. mars næstkomandi. Viðskiptavakt fyrir
alla flokka sértryggðra skuldabréf Íslandsbanka er á vegum MP banka.

Bréfin eru gefin út í samræmi við lög nr. 11 frá 2008 um sértryggð skuldabréf
þar sem strangar kröfur eru gerðar til útgefenda. Tryggingasafnið að baki
skuldabréfunum skal standast sérstök vikuleg álagspróf með tilliti til vaxta og
gengis gjaldmiðla. Þá hefur Fjármálaeftirlitið sérstakt eftirlit með útgáfunum,
sem einnig tilnefnir sjálfstæðan skoðunarmann til að sinna eftirliti. Skýrslur
um tryggingasafnið að baki sértryggðu skuldabréfunum eru gefnar út
ársfjórðungslega og má finna á vef Íslandsbanka.

Nánari upplýsingar veita:

  * Fjárfestatengill - Tinna Molphy, tinna.molphy@islandsbanki.is og í síma
    440 3187 / 844 3187
  * Upplýsingafulltrúi - Dögg Hjaltalín, dogg.hjaltalin@islandsbanki.is og í
    síma 440 3925.


[HUG#1765968]