|
|||
2009-12-30 10:00:00 CET 2009-12-30 10:01:37 CET REGULATED INFORMATION Össur hf. - FyrirtækjafréttirÖssur hefur gert nýjan samning um viðskiptavakt í kauphöll NASDAQ OMX í KaupmannahöfnÖssur hf. ("Össur") hefur í dag gert samning við SEB Enskilda Equities ("SEB") um viðskiptavakt á hlutabréfum félagsins í kauphöll NASDAQ OMX í Kaupmannahöfn. Samningnum er ætlað að auka viðskipti með hlutabréf Össurar í kauphöll NASDAQ OMX í Kaupmannahöfn og stuðla að skilvirkri og gegnsærri verðmyndun á hlutabréfum félagsins. Samkvæmt samningnum mun SEB setja fram kaup- og sölutilboð í hlutabréf félagsins alla viðskiptadaga í kauphöll NASDAQ OMX í Kaupmannahöfn.Hvert tilboð skal að lágmarki vera 5.000 hlutir. Munur milli kaup- og sölutilboðs má ekki fara yfir 2,0%. Samningi Össurar við Nordea um viðskiptavakt hefur verið sagt upp og tekur uppsögnin gildi 31. desember 2009. Samningurinn við SEB tekur gildi 1. janúar 2010. Arion banki og Saga Capital Fjárfestingarbanki annast viðskiptavakt á hlutabréfum Össurar í kauphöll NASDAQ OMX á Íslandi. Nánari upplýsingar veita: Hjörleifur Pálsson,fjármálastjóri, sími 515 1300 Sigurborg Arnarsdóttir, fjárfestatengill, sími 664 1044 [HUG#1368705] |
|||
|