2024-05-21 11:31:07 CEST

2024-05-21 11:31:07 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Nova Klúbburinn hf. - Breytingar á eigin hlutum félags

Nova Klúbburinn hf.: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 20


Í 20. viku 2024 keypti Nova Klúbburinn hf. 3.175.000 eigin hluti að kaupverði 12.278.810 kr. í samræmi við eftirfarandi:

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð (gengi) Kaupverð (kr.)
13/05/2023 10:05:02 612.000     3.85 2.356.200    
15/05/2023 09:41:18 653.000     3.85 2.514.050    
15/05/2023 13:35:51 312.000     3.85 1.201.200    
16/05/2023 10:28:57 886.000     3.88 3.437.680    
17/05/2023 09:50:12 712.000     3.89 2.769.680    
Samtals   3.175.000   12.278.810

Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Nova Klúbbsins sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 24. apríl 2024. Endurkaup munu samkvæmt áætluninni nema að hámarki 550 milljónum kr. að kaupverði og mun áætlunin vera í gildi þar til því hámarki er náð, þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagins 2025.

Nova Klúbburinn átti 7.280.000 eigin hluti fyrir viðskiptin og á því að þeim loknum 10.455.000 hluti, eða um 0,284% af útgefnum hlutum í félaginu, og nemur heildarkaupverð þeirra 41.352.300 kr.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög, nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014, um markaðssvik, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum, nr. 60/2021, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.

Nánari upplýsingar veitir Þórhallur Jóhannsson, fjármálastjóri Nova Klúbbsins, á fjarfestatengsl@nova.is