|
|||
2011-10-06 11:37:44 CEST 2011-10-06 11:38:45 CEST REGULATED INFORMATION Eyrir Invest ehf. - FyrirtækjafréttirEyrir Invest kaupir eigin skuldabréf og tekur lánEyrir Invest ehf. hefur í dag keypt eigin skuldabréf í flokknum EYRI 05 1 að nafnvirði 325 milljónir króna. Viðskiptin fóru fram á pari. Þá hefur félagið tekið bankalán hjá MP Banka að andvirði 500 milljóna króna með veði í hlutabréfum. Lánið er verðtryggt og ber breytilega vexti, nú 5,70%. Lánið er til 5 ára með vaxtagreiðslum á 6 mánaða fresti. Lokagjalddagi er í nóvember 2016. Lántakan og uppgreiðslan skuldabréfanna er hluti af lána- og lausafjárstýringu Eyris Invest. |
|||
|