2022-08-19 11:30:00 CEST

2022-08-19 11:30:00 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Íþaka fasteignir ehf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Skráning skuldabréfaflokksins ITHAKA 291128 og ITHAKA 070627


Íþaka fasteignir ehf. hafa birt lýsingar dagsettar 9. ágúst 2022. Lýsingarnar samanstanda annars vegar af útgefandalýsingu og hins vegar tveimur verðbréfalýsingum og eru birtar í tengslum við umsókn útgefanda að skuldabréf í flokknum ITHAKA 291128 og ITHAKA 070627 verði tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland hf. Lýsingarnar hafa verið staðfestar af Fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands og verða skuldabréfaflokkarnir teknir til viðskipta föstudaginn 19. ágúst hjá Nasdaq Iceland hf.

Skuldabréf að nafnvirði 6.000 m.kr. voru seld í flokknum ITHAKA 291128 og 3.040 m.kr. í flokknum ITHAKA 070627.

Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka hafði umsjón með því ferli að fá lýsingarnar staðfestar hjá Fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands og töku skuldabréfaflokkanna til viðskipta. Lýsingarnar má finna á heimasíðu útgefanda, https://www.ithaka.is/fjarmala-og-markadsupplysingar. Jafnframt má nálgast þær á skrifstofu félagsins Lynghálsi 4, 110 Reykjavík.

Nánari upplýsingar veitir Gunnar Valur Gíslason, framkvæmdastjóri, í síma 822-4403 eða í tölvupósti á gunnarvalur@ithaka.is.