2011-06-30 15:21:33 CEST

2011-06-30 15:22:34 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Reykjavíkurborg - Ársreikningur

Leiðrétting: Óendurskoðaður árshlutareikningur Reykjavíkurborgar fyrir tímabilið janúar - mars 2011. Frétt birt 2011-06-30 15:04:27


Leiðrétting: frétt fór undir rangan fréttaflokk.



Óendurskoðaður árshlutareikningur A hluta Reykjavíkurborgar fyrir tímabilið
janúar - mars 2011 var lagður fram í borgarráði 30. júní 2011. Til A hluta
telst starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum. Um
er að ræða Aðalsjóð, þ.e. rekstur fagsviða, og Eignasjóð. 

Í fjárhagsáætlun fyrir tímabilið janúar - mars 2011 fyrir A hluta var gert ráð
fyrir því að niðurstaða fyrir fjármagnsliði yrði neikvæð um 637 milljónir króna
og rekstrarniðurstaða tímabilsins neikvæð um 685 milljónir króna. Samkvæmt
árshlutareikningnum er niðurstaða A hluta fyrir fjármagnsliði neikvæð um 672
milljónir króna og rekstrarniðurstaða neikvæð um 789 milljónir króna. 

Reykjavík 30. júní 2011.