|
|||
![]() |
|||
2017-05-30 18:06:08 CEST 2017-05-30 18:06:08 CEST REGULATED INFORMATION Reginn hf. - ÁrsreikningurÁrshlutareikningur Regins fyrstu 3 mánuði ársins 2017Árshlutareikningur Regins hf. 1. janúar 2017 til 31. mars 2017 var samþykktur af stjórn þann 30. maí. · Rekstrartekjur námu 1.643 m.kr. · Vöxtur leigutekna frá fyrra ári var 9%. · Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu og afskriftir var 1.020 m.kr., og jókst um 2% frá fyrra ári. · Bókfært virði fjárfestingareigna í lok tímabils er 84.086 m.kr. Matsbreyting á tímabilinu var 331 m.kr. · Hagnaður eftir tekjuskatt nam 620 m.kr. sem er lækkun um 17% frá fyrra ári. · Handbært fé frá rekstri nam 1.066 m.kr. · Vaxtaberandi skuldir voru 49.259 m.kr. í lok tímabilsins samanborið við 49.499 m.kr. í árslok 2016. Skuldsetning sem hlutfall af fjárfestingareignum er 59%. · Eiginfjárhlutfall er 35%. · Hagnaður á hlut fyrir tímabilið er 0,4 en var 0,52 fyrir sama tímabil í fyrra. Félagið er skráð í Kauphöll Íslands (NASDAQ OMX Iceland hf.), fjöldi hluthafa þann 31. mars sl. voru 766. Rekstur og afkoma Afkoma Regins á fyrstu þremur mánuðum ársins er í samræmi við áætlanir félagsins. Rekstrartekjur námu 1.643 m.kr. og þar af námu leigutekjur 1.523 m.kr. Hækkun leigutekna frá sama tímabili fyrra árs er rúmlega 9%. Rekstrarhagnaður fyrir söluhagnað, matsbreytingu og afskriftir / EBITDA var 1.020 m.kr. sem samsvarar um 2% hækkun samanborið við sama tímabil árið 2016. Áhrif þeirra miklu umbreytinga sem eru yfirstandandi í Smáralind, stærstu eign félagsins, eru nú í hámarki. Áhrifin eru tímabundið lægri tekjur og hærri rekstrarkostnaður á um fjórðungi leigjanlegra fermetra í Smáralind. Eignasafn og efnahagur Eignasafn Regins er fjölbreytt, með góða dreifingu og samanstendur af atvinnuhúsnæði með háu útleiguhlutfalli og traustum leigutökum. Fjöldi fasteigna í lok tímabilsins var 121 og heildarfermetrafjöldi þeirra eigna er um 314 þúsund. Útleiguhlutfall á safni Regins er um 95% miðað við þær tekjur sem 100% útleiga gæfi. Fasteignasafn Regins er metið á gangvirði í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS). Safnið er metið í lok hvers uppgjörstímabils. Matsbreyting á fyrstu 3 mánuðum ársins nam 331 m.kr. Rekstur og horfur Fyrsti ársfjórðungurinn einkenndist af miklum umsvifum í tengslum við fjárfestingar vegna nýrra leigusamninga sem og vinnu við velheppnað skuldabréfaútboð félagsins. Félagið lauk útboði á nýjum flokki skuldabréfa sem var gefinn út undir nýjum útgáfuramma. Tekið var tilboðum að fjárhæð 7.030 m.kr. í flokkinn á ávöxtunarkröfunni 3,70%. Afrakstri skuldabréfaútboðsins var varið til endurfjármögnunar á óhagstæðari fjármögnun félagsins. Áætlað er að Eignarhaldsfélagið Smáralind muni afhenda H&M nýtt 4.300 m2 leigurými í vesturenda Smáralind í júní en H&M hefur tilkynnt að verslunin muni opna í ágúst nk. Verslunin í Smáralind verður sú fyrsta á Íslandi og flaggskip H&M hér á landi. Miklar breytingar hafa þegar átt sér stað í Smáralind og má þar nefna opnun nýrra verslana í austurenda s.s. Hagkaup, Útilíf, Síminn, Tiger, Nova og ÁTVR. Stjórnendur félagsins telja að horfur í rekstri séu góðar og að ekki séu vísbendingar um annað en að áætlanir félagsins standist í öllum aðalatriðum. Kynning á félaginu Samhliða birtingu uppgjörs boðar Reginn til opins kynningarfundar miðvikudaginn 31. maí kl. 08:30 á skrifstofu Regins í Smáralind, Hagasmára 1, 1. hæð, Kópavogi. Gengið er inn í skrifstofur Regins beint frá bílastæðahúsi við Norðurturninn. Helgi S. Gunnarsson forstjóri félagsins mun kynna afkomu fyrstu þriggja mánaða ársins 2017 og svara spurningum.
Skráning á kynningarfundinn fer fram í gegnum netfangið fjarfestatengsl@reginn.is.
Hægt er að nálgast árshlutareikning vegna fyrstu þriggja mánaða ársins og kynningargögn á www.reginn.is/fjarfestavefur
Nánari upplýsingar veitir: Helgi S. Gunnarsson Forstjóri Regins hf. Sími: 512 8900 / 899 6262 |
|||
|