2008-05-20 11:00:00 CEST

2008-05-20 11:00:26 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Hf. Eimskipafélag Íslands - Fyrirtækjafréttir

Gylfi Sigfússon tekur við starfi forstjóra Eimskips


Gylfi Sigfússon hefur verið ráðinn forstjóri Hf. Eimskipafélags Íslands. Gylfi
hefur sinnt ýmsum störfum innan Eimskips og tengdra félaga og hefur í 18 ár
starfað hjá fyrirtækjum í flutningatengdum rekstri. Stefán Ágúst Magnússon, sem
hefur tímabundið gegnt stöðu forstjóra og áður stöðu aðstoðarforstjóra og
framkvæmdastjóra fjármálasviðs, mun að eigin ósk láta af störfum hjá félaginu.
Stefán mun á næstu tveimur til þremur mánuðum sinna stöðu aðstoðarforstjóra og
ljúka ákveðnum verkefnum fyrir félagið. 
Gylfi útskrifaðist frá Viðskiptadeild Háskóla Íslands árið 1990.  Hann var
framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Tollvörugeymslunnar (TVG) á árunum 1990-1996,
var framkvæmdastjóri Ambrosio Shipping í Bandaríkjunum á árunum 1996-2000 og
framkvæmdastjóri Eimskips Logistics í Bandaríkjunum á árunum 2000-2006.
Undanfarin tvö ár hefur Gylfi verið framkvæmdastjóri Eimskip Americas, sem nær
yfir flutningastarfsemi Eimskips í Bandaríkjunum og Kanada. Hann hefur
jafnframt setið í framkvæmdastjórn frysti- og kæligeymslufyrirtækis Eimskips,
Versacold/Atlas, frá árinu 2007. 
Sindri Sindrason, stjórnarformaður Eimskips:                                   
                                                   „Við bjóðum Gylfa velkominn
sem nýjan forstjóra Eimskips. Hann hefur víðtæka reynslu af stjórnunarstörfum
fyrirtækja í flutningarekstri og hefur tekið virkan þátt í stefnumótun og vexti
Eimskips í Bandaríkjunum og Kanada. Eimskip hefur vaxið mjög hratt á
undanförnum árum og áherslur okkar á komandi misserum verða á að ná vel utan um
rekstur samstæðunnar og fylgja eftir markmiðum okkar. Ég vil einnig þakka
Stefáni fyrir gott og fórnfúst starf við uppbyggingu Eimskips á undanförnum
árum og mikilvægt framlag hans til félagsins.“ 
Gylfi Sigfússon, forstjóri Eimskips:                                           
                                                             „Það er ánægjulegt
að fá tækifæri til að taka við stöðu forstjóra Eimskips. Á þeim 18 árum sem ég
hef unnið hjá Eimskip og tengdum félögum, tel ég mig hafa fengið góða innsýn
inn í starfsemi félagsins og tækifæri þess til áframhaldandi vaxtar. Félagið
hefur skapað sér sterka stöðu sem leiðandi alþjóðlegt flutningafélag og sem
stærsta frysti- og kæligeymslu fyrirtæki í heimi. Á þeim grunni mun ég byggja
og í samvinnu við góðan hóp starfsmanna,  verður kappkostað við að efla félagið
enn frekar og leita sóknarfæra á mörkuðum okkar um allan heim.“ 

Frekari upplýsingar veitir:

Halldór Kristmannsson                                                          
               Framkvæmdastjóri Samskiptasviðs                                 
                                              Sími: 525 7000 / 
8257221                                                                        
                  Póstfang: halldor@eimskip.is 

Um Eimskip
Eimskip býður viðskiptavinum heildarlausnir í flutningum, með sérstakri áherslu
á hitastýrða flutninga og geymslu. Félagið rekur um 280 starfsstöðvar í um 30
löndum, er með um 40 skip í rekstri og um 2.000 flutningabíla. Eimskip er
jafnframt stærsta frysti- og kæligeymslufyrirtæki heims, með um 180 geymslur,
m.a. í Bandaríkjunum, Kanada og Asíu. Starfsmenn eru um 14.000 talsins.