2016-04-08 17:20:09 CEST

2016-04-08 17:20:09 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Eik fasteignafélag hf. - Boðun hluthafafundar

Eik fasteignafélag hf. : Endanleg dagskrá fyrir aðalfund 2016, framboð til stjórnar og ársskýrsla


Aðalfundur Eikar fasteignafélags hf. verður haldinn þann  12. apríl 2016 kl.
15:30 á 20. hæð í Turninum, Smáratorgi 3, Kópavogi.

Framboðsfrestur til stjórnar Eikar fasteignafélags hf. rann út 7. apríl s.l.
Eftirtaldir einstaklingar hafa gefið kost á sér til setu í stjórn félagsins:

- Agla Elísabet Hendriksdóttir, kennitala: 300167-5869.

- Arna Harðardóttir, kennitala: 061065-2969.

- Eyjólfur Árni Rafnsson, kennitala: 210457-3649.

- Frosti Bergsson, kennitala: 301248-2969.

- Guðrún Bergsteinsdóttir, kennitala: 270775-3659.

Stjórn hefur metið öll framboð til stjórnar gild, sbr. 63. gr. a laga um
hlutafélög nr. 2/1995.

Samkvæmt samþykktum félagsins skal stjórnin skipuð fimm mönnum og er því
sjálfkjörið í stjórn félagsins.

Nánari upplýsingar um frambjóðendur er að finna í viðhengi.

Endanleg dagskrá aðalfundar

Engar breytingatillögur bárust félaginu og er endanleg dagskrá fundarins
eftirfarandi:

 1. Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins síðastliðið starfsár
 2. Ársreikningur og samstæðureikningur félagsins, ásamt skýrslu endurskoðanda,
    er lagður fram til staðfestingar og ákvörðun er tekin um hvernig fara skuli
    með hagnað eða tap félagsins á reikningsárinu
 3. Ákvörðun um þóknun til stjórnar fyrir störf þeirra fyrir komandi starfsár,
    að fengnum tillögum félagsstjórnar
 4. Tillaga félagsstjórnar um starfskjarastefnu félagsins
 5. Kosning félagsstjórnar
 6. Kosning löggilts endurskoðanda eða endurskoðunarfélags
 7. Önnur mál sem löglega eru fram borin

Stjórn félagsins leggur til við aðalfund félagsins að félagið greiði hluthöfum
arð sem nemur kr. 0,237 á hlut fyrir árið 2015. Heildarfjárhæð arðgreiðslunnar
verði 820.000.000 kr. Arðsákvörðunardagur verði 12. apríl 2016 og
arðsréttindadagur verði 14. apríl 2016 sem þýðir að skráðir hluthafar í lok dags
14. apríl 2016 eiga rétt á arðgreiðslu. Arðleysisdagur, það er sá dagur sem
viðskipti hefjast með hlutabréf félagsins án réttar til arðs vegna
reikningsársins 2015, verði 13. apríl 2016, sem er fyrsti viðskiptadagur eftir
arðsákvörðunardag. Útborgunardagur verði 25. maí 2016 og greitt verði í
íslenskum krónum.

Ársskýrsla 2015

Meðfylgjandi er auk þess Ársskýrsla 2015, en gerðar voru lítillegar breytingar á
skýringu 20 um tengda aðila. Skýrsluna er einnig finna á heimasíðu félagsins,
www.eik.is/fjarfestar.


[HUG#2002085]