2016-04-08 20:07:02 CEST

2016-04-08 20:07:02 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Íslandsbanki hf. - Fyrirtækjafréttir

Íslandsbanki lýkur útboði á sértryggðum skuldabréfum og víxlum


Íslandsbanki  hf. lauk  í dag  útboði á  sértryggðum skuldabréfum  og víxlum. Að
þessu  sinni var öllum tilboðum hafnað í sértryggða skuldabréfaflokknum ISLA CBI
22.

Seldir  víxlar í 3ja mánaða flokkinn ISLA 16 0721 voru að nafnvirði 1,74 ma. kr.
á 6,41% flötum vöxtum (verð 98,3022) og í 6 mánaða flokkinn ISLA 16 1012 seldust
að   nafnvirði   1,36 ma.   kr.   á   6,50% flötum   vöxtum   (verð   96,8523).
Heildareftirspurn var 5,72 ma. kr. en 54% tilboða var tekið.

Í kjölfar skráningar útboðsins mun heildarupphæð útistandandi víxla Íslandsbanka
verða 10,64 ma. kr.

Stefnt  er að töku til viðskipta í  Nasdaq Iceland þann 15. apríl næstkomandi en
þá eru 4,44 ma. kr. á gjalddaga í ISLA 16 0415.

Nánari upplýsingar veita:
  * Fjárfestatengill - Tinna Molphy, ir@islandsbanki.is og í síma 440 3187.
  * Samskiptastjóri - Edda Hermannsdóttir, pr@islandsbanki.is og í síma
    440 4005.


[HUG#2002143]