|
|||
2015-02-26 11:41:44 CET 2015-02-26 11:42:45 CET REGULATED INFORMATION Reykjavíkurborg - FyrirtækjafréttirBorgarráð samþykkir stofnun á nýjum skuldabréfaflokkiBorgarráð samþykkti á fundi sínum þann 26. febrúar 2015 eftirfarandi tillögu: „Borgarráð staðfestir umboð fjármálastjóra til að efna til útgáfu á nýjum skuldabréfaflokki borgarsjóðs í lokuðu útboði og selja úr honum skuldabréf á árinu fyrir allt að 1,7 milljarð króna náist ásættanleg ávöxtunarkrafa. Endanlegir skilmálar skulu bornir undir borgarráð til samþykktar.“ Engar breytingar hafa verið gerðar á útgáfuáætlun Reykjavíkurborgar sem samþykkt var í borgarráði og birt í fréttakerfi NADAQ/OMX á Íslandi 8. janúar sl. Nánari upplýsingar gefur: Birgir Björn Sigurjónsson Fjármálastjóri Reykjavíkurborgar Sími: 411-1111 |
|||
|