|
|||
2019-03-22 12:04:04 CET 2019-03-22 12:04:06 CET Hampiðjan hf. - Notice to convene annual general meetingDagskrá og tillögur fyrir aðalfund Hampiðjunnar er haldinn verður 5. apríl 2019, kl. 16:00DAGSKRÁ
Atkvæðaseðlar og önnur fundargögn verða afhent á fundarstað. TILLÖGUR Um greiðslu arðs: Stjórn félagsins leggur til að á árinu 2019 vegna rekstrarársins 2018 verði greiddar 1,00 kr. á hlut í arð til hluthafa, eða 490 milljónir ISK. Arðurinn verði greiddur í viku 23. Um þóknun til stjórnarmanna: Þóknun til stjórnarmanna fyrir liðið ár verði kr. 2.200.000, formaður fái þrefaldan hlut. Þóknun til stjórnarmanna verði 200.000 kr. á mánuði árið 2019, formaður fái þrefaldan hlut. Um endurskoðunarfélag: PricewaterhouseCoopers ehf. verði kjörið til næsta árs. Um heimild stjórnar til kaupa á eigin hlutum: Aðalfundur Hampiðjunnar hf. haldinn 5. apríl 2019 veitir stjórn félagsins heimild til að kaupa eigin hluti í félaginu. Heimild þessi stendur í 18 mánuði og takmarkist við að samanlögð kaup fari ekki yfir 10% af heildarhlutafé félagsins á hverjum tíma. Kaupgengi skal miða við síðasta skráða dagslokagengi á markaði áður en kaupsamningur er gerður. Attachment |
|||
|