2014-03-14 16:18:16 CET

2014-03-14 16:19:18 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Hampiðjan hf. - Notice to convene ext. general meeting (is)

Aðalfundur Hampiðjunnar verður haldinn föstudaginn 28. mars 2014 og hefst kl. 16:00


Aðalfundur Hampiðjunnar hf. verður haldinn að Skarfagörðum 4, Reykjavík,
föstudaginn 28. mars 2014 og hefst kl. 16:00. 



Á dagskrá fundarins verða:



  1. Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt samþykktum félagsins.
  2. Tillaga um heimild félagsstjórnar til kaupa á eigin hlutum skv. 55. gr.
     hlutafélagalaga.
  3. Önnur mál, löglega upp borin.



Dagskrá, endanlegar tillögur og ársreikningur félagsins munu liggja frammi á
skrifstofu félagsins, hluthöfum til sýnis, tveimur vikum fyrir aðalfund. 

Atkvæðaseðlar og önnur fundargögn verða afhent á fundarstað.

Framboðsfrestur vegna stjórnarkjörs rennur út fimm virkum dögum fyrir upphaf
aðalfundar. 

Tillögur frá hluthöfum, sem bera á fram á aðalfundi, skulu hafa borist í hendur
stjórnar með skriflegum hætti eigi síðar en tveimur vikum fyrir aðalfund. 

Hluthafar sem ekki geta sótt fundinn, en hyggjast gefa umboð, þurfa að gera það
skriflega.