|
|||
2009-11-17 18:36:21 CET 2009-11-17 18:37:22 CET REGULATED INFORMATION Eik fasteignafélag hf. - FyrirtækjafréttirLánadrottinn Eikar fasteignafélags hf. synjar skilmálabreytinguFréttatilkynning 17. nóvember 2009 Frá því að íslensku bankarnir voru teknir yfir af Fjármálaeftirlitinu hefur Eik fasteignafélag hf. átt í viðræðum við lánadrottna sína um fjárhagsstöðu félagsins. Markmið viðræðnanna hefur verið að leysa úr þungri greiðslubyrði félagsins, í kjölfar breyttrar stöðu á íslenskum fasteignamarkaði. Viðræður við einn helsta lánadrottin Eikar hafa nú siglt í strand, þar sem hann hefur synjað félaginu um skilmálabreytingu. Óneitanlega kemur höfnun lánadrottins Eikar verulega á óvart, í ljósi þess að sjóðsstreymi félagsins stendur undir öllum vaxtagreiðslum þessa árs og næstu ára, skv. varfærinni áætlun. Þá er rétt að geta þess að bókfært eigið fé Eikar var yfir tveir milljarðar þann 30. júní s.l. Þrátt fyrir sterkt sjóðsstreymi er ljóst að sökum þeirrar lækkunar á leigu sem átt hefur sér stað á fasteignamarkaðinum, getur félagið ekki staðið við umsamdar afborganir. Í ljósi þess að félagið er með jákvætt sjóðsstreymi var talið víst að Eik uppfyllti helstu forsendur þess að greiðslubyrði félagsins yrði aðlöguð í samræmi við verklagsreglur lánastofnanna. Höfnun stærsta lánadrottins félagsins setur því óneitanlega óveðtryggðar kröfur í félagið í uppnám, þar með talið þann skuldabréfaflokk sem skráður er í kauphöllinni. Á meðal eigenda slíkra krafna eru íslensku lífeyrissjóðirnir. Frá upphafi hefur Eik rekið mjög varfærnislega fjárfestingastefnu. Rekstur félagsins gengur út á að kaupa og leigja fasteignir, en frá árinu 2006 dró verulega úr fasteignakaupum félagsins þar sem forsvarsmenn félagsins töldu að ekki væri inneign fyrir verðþróun markaðarins, eins og síðar kom á daginn. Félagið hefur jafnframt forðast erlendar lántökur og er meginþorri skulda félagsins í íslenskum krónum. Markvisst hefur verið unnið að því að draga úr rekstrarkostnaði félagsins á undanförnum misserum, en hafa ber í huga að stór hluti rekstrarkostnaðarins er fastur kostnaður sem á rætur sínar að rekja beint til rekstrarins. Þrátt fyrir erfitt markaðsumhverfi hefur útleiga fasteigna félagsins gengið framar vonum og hafa skráðar fyrirspurnir til félagsins aldrei verið fleiri. Áætlanir félagsins hafa jafnframt verið mjög varfærnislegar. Þegar horft er til 10 mánaða uppgjörs félagsins skilaði Eik inngreiddum tekjum upp á 61 milljón umfram áætlun eða upp á 4,6 prósent. Eignasafn Eikar var metið á 19,7 milljarða í sex mánaða uppgjöri 2009 og reiknaði félagið sér ekki viðskiptavild. Á sama tíma námu vaxtaberandi skuldir félagsins 17,4 milljörðum en 11,8 milljarðar hvíla hjá helsta lánadrottni Eikar. Í ljósi stöðunnar munu forsvarsmenn fyrirtækisins leita leiða, í samráði við eigendur félagsins, til þess að reyna að koma í veg það tjón sem kann að myndast hjá óveðtryggðum kröfuhöfum fari félagið í þrot. Frekar upplýsingar gefur: Garðar Hannes Friðjónsson Forstjóri S. 861-3027 |
|||
|