2013-06-05 18:50:00 CEST

2013-06-05 18:50:01 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
HB Grandi hf. - Company Announcement (is)

Nýtt stjórnskipulag tekur gildi hjá HB Granda


Breytingar hafa verið gerðar á stjórnskipulagi HB Granda hf. Markmið þeirra er
að stytta boðleiðir milli veiða og vinnslu og skýra betur línur varðandi ýmsa
mikilvæga þætti í rekstrinum. Meginbreytingin felst í því að framleiðslusvið
botnfisks og útgerðarsvið hafa verið sameinuð í botnfisksvið og verkefni
útgerðarsviðs færð til botnfisksviðs og uppsjávarsviðs. Útgerðarsvið hefur því
verið lagt niður. 

Torfi Þ. Þorsteinsson, sem áður veitti framleiðslusviði botnfisks forstöðu,
hefur tekið við sem deildarstjóri botnfisksviðs. Rúnar Þór Stefánsson sem
veitti útgerðarsviði forstöðu lætur nú af störfum hjá félaginu en mun sem
ráðgjafi fylgja úr hlaði ýmsum verkefnum eins og breytingu Helgu Maríu í
ísfisktogara. Aðrir starfsmenn útgerðarsviðs færast yfir til botnfisksviðs og
uppsjávarsviðs. Hluti af verkefnum útgerðarsviðs flytjast til fjármálasviðs,
sem Jónas Guðbjörnsson veitir forstöðu. 

Auk ofangreindra breytinga hefur ný deild viðskiptaþróunar verið stofnuð og
heyrir hún beint undir forstjóra. Deildin ber ábyrgð á verkefnum utan Íslands,
umhverfismálum og viðskiptaþróun. Svavar Svavarsson, sem áður veitti
markaðsdeild forstöðu, er deildarstjóri viðskiptaþróunar. 

Þá hefur Brynjólfur Eyjólfsson, sem annaðist rannsóknir í markaðsdeild, tekið
við sem deildarstjóri markaðsdeildar. Jafnframt hefur Garðar Svavarsson, sem
gegndi starfi sölustjóra í markaðsdeild, tekið við starfi deildarstjóra
uppsjávardeildar en Vilhjálmur Vilhjálmsson, forstjóri, veitti þeirri deild
forstöðu áður. 

Framkvæmdastjórn félagsins skipa nú forstjóri og deildarstjórar þessara fimm
sviða, sem eru eins og áður segir: 

  -- Botnfisksvið - Torfi Þ. Þorsteinsson
  -- Fjármálasvið - Jónas Guðbjörnsson
  -- Markaðsdeild - Brynjólfur Eyjólfsson
  -- Uppsjávarsvið - Garðar Svavarsson
  -- Viðskiptaþróun - Svavar Svavarsson

Breytingarnar hafa þegar tekið gildi.



Nánari upplýsingar veitir Vilhjálmur Vilhjálmsson forstjóri í síma 858 1007.
Sjá einnig heimasíðu félagsins, hbgrandi.is.