2017-03-27 14:35:58 CEST

2017-03-27 14:35:58 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Kvika banki hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Kvika banki hf.: Leiðrétting vegna auglýsingar


Kvika vekur athygli á því að röng auglýsing vegna útgáfu sex mánaða víxla að
fjárhæð 2.000 milljónir króna birtist í Fréttablaðinu í dag, 27. mars 2017. Rétt
auglýsing vegna útgáfu víxlanna verður birt í Fréttablaðinu á morgun, 28. mars
2017. Sjá má rétta auglýsingu hér fyrir neðan:



Kvika gefur út sex mánaða víxla

Reykjavík, 27. mars 2017

Kvika  banki  hf.  hefur  gefið  út  sex mánaða víxla að fjárhæð 2.000 milljónir
króna.  Um er  að ræða  útgáfu í  víxlaflokknum KVB 17 0921 og er heildarheimild
flokksins  2.000 m.kr.  Fjármálaeftirlitið  staðfesti  lýsingu vegna umsóknar um
töku  víxlanna til  viðskipta, þann  24. mars 2017, og  sótt hefur verið um töku
víxlanna til viðskipta í Kauphöll Íslands.

Útprentuð  eintök lýsingarinnar má nálgast í 12 mánuði frá staðfestingu hennar í
höfuðstöðvum Kviku, Borgartúni 25, 105 Reykjavík.

Rafræn eintök má nálgast á vefsíðu Kviku https://www.kvika.is/um_kviku/#tab2.




[]