2016-03-04 23:30:49 CET

2016-03-04 23:30:49 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Íbúðalánasjóður - Ársreikningur

Ársreikningur Íbúðalánasjóðs árið 2015


Fréttatilkynning og ársreikningur 2015

Meðfylgjandi eru ársreikningur Íbúðalánasjóðs fyrir árið 2015 ásamt
afkomutilkynningu sjóðsins. 

Eiginfjárhlutfall er yfir lögbundnu lágmarki í fyrsta skipti frá árinu 2007:

Rekstrarafgangur hjá Íbúðalánasjóði nam 1.826 milljónum

Eiginfjárgrunnur styrkist, gæði útlána aukast og hreinar vaxtatekjur eru
1.632.761 milljónir 

Ársreikningur Íbúðalánasjóðs fyrir árið 2015 var staðfestur af stjórn sjóðsins
í dag. Samstæðureikningur Íbúðalánasjóðs hefur að geyma reikninga
Íbúðalánasjóðs og dótturfélags hans, Leigufélagsins Kletts ehf.
Rekstrarafgangur ársins nam 1.826 milljónum kr. 

Eiginfjárhlutfall sjóðsins er nú 5,5% en var 4,5% í upphafi árs. Hlutfallið er
reiknað með sama hætti og eiginfjárhlutfall fjármálafyrirtækja. Langtímamarkmið
sjóðsins er að hlutfallið sé yfir 5,0%. Eiginfjárhlutfallið hefur ekki verið
hærra síðan árið 2007. Eigið fé Íbúðalánasjóðs í lok tímabilsins er 19.838
milljónir kr. en var 18.011 milljónir kr. í árslok 2014. 

Rekstrarafkoma

Vaxtatekjur námu 51.706 milljónum kr. samanborið við 45.783 milljónir kr. fyrir
árið 2014. 

Rekstrarkostnaður nam 1.874 milljónum kr. og lækkaði um 3% samanborið við árið
2014, þrátt fyrir umtalsverðar hækkanir launa skv. kjarasamningum á tímabilinu.
Stöðugildum fækkaði um 6% á árinu. Starfsmenn voru 88 við lok rekstrarársins og
eru í dag 83. Rekstrarkostnaður sem hlutfall heildareigna nam 0,23%. 

Gæði útlánasafnsins hafa aukist

Útlánasafn sjóðsins hvílir á 55.337 íbúðum í eigu einstaklinga og leigufélaga
út um allt land. Í lok tímabilsins voru 96,5% heimila sem eru í viðskiptum við
Íbúðalánasjóð með lán sín í skilum. Virðisrýrnun útlána nam 16.148 milljónum
kr. í lok árs 2015 og lækkar um 4.443 milljónir kr. á árinu. Breyting
virðisrýrnunar tengist umtalsverðri lækkun vanskila heimila og sterkari
tryggingarstöðu lánasafnsins vegna hækkana á fasteignamarkaði. 

Útlán og eignir

Í árslok námu útlán 648 milljörðum kr. og höfðu útlán lækkað um 80 milljarða
kr. á árinu en þar af eru um 33,8 milljarðar kr. vegna skuldaúrræða
stjórnvalda. Skuldastaða sjóðsins nam 784 milljörðum kr. og lækkaði um 22
milljarða kr. á árinu. Fjármagn í ávöxtun utan útlánasafns nam 127 milljörðum
kr. í árslok en þar af voru 107 milljarðar kr. í verðtryggðum eignum á móti
skuldum sjóðsins. Heildareignir sjóðsins námu 804 milljörðum kr. 

Sala fasteigna

Á árinu 2015 seldi sjóðurinn 898 íbúðir og leysti til sín 355 íbúðir. Í lok árs
voru 1.348 íbúðir í eigu sjóðsins og hafði þeim fækkað um 543 eignir á árinu.
Bókfært virði fullnustueigna sjóðsins tekur mið af kostnaðarverði eða áætluðu
gangvirði hvoru sem lægra reynist. Bókfært virði eigna sjóðsins er 20
milljarðar kr., á sama tíma og fasteignamat sömu eigna er 24,6 milljarðar kr. 

Nánari upplýsingar veita Hermann Jónasson forstjóri og Sigurður Jón Björnsson,
framkvæmdastjóri fjármálasviðs, í síma 569 6900.