|
|||
2017-06-01 22:52:49 CEST 2017-06-01 22:52:49 CEST REGLAMENTUOJAMA INFORMACIJA Garðabær - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur KauphallarinnarStaðfest niðurstaða úr skuldabréfaútboði GarðabæjarÚtboð á skuldabréfum Garðabæjar fór fram 29. maí 2017 í umsjón fjárfestingarbankasviðs Arion banka. Boðin voru ný verðtryggð jafngreiðslubréf til 14 ára í opnum flokki GARD 16 01 að andvirði allt að 800 milljónum króna. Tilboð bárust fyrir samtals 1.850 milljónir króna með ávöxtunarkröfu á bilinu 2,95-3,14%. Bæjarstjórn Garðabæjar staðfesti 1. júní 2017 þá samþykkt bæjarráðs Garðabæjar frá 30. maí að taka tilboðum að andvirði 800 milljónum króna á ávöxtunarkröfunni 3,04%.
Áður útgefin bréf í flokknum GARD 16 01 hafa verið tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Kauphallar Íslands og verður óskað eftir því að nýju bréfin verði einnig tekin til viðskipta. Lántakan er samkvæmt heimild í fjárhagsáætlun Garðabæjar 2017 (2018-2020) sem samþykkt var í bæjarstjórn 1. desember 2016.
Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri Garðabæjar, á netfanginu ludvik@gardabaer.is eða í síma 525-8530 |
|||
|