2013-08-07 17:40:52 CEST

2013-08-07 17:41:53 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Icelandair Group hf. - Fyrirtækjafréttir

Flutningatölur júlí 2013


Í júlí flutti félagið 306 þúsund farþega í millilandaflugi og voru þeir 11%
fleiri en í júlí á síðasta ári.  Þetta er í fyrsta skipti sem félagið flytur
yfir 300 þúsund farþega í einum mánuði. Framboðsaukning á milli ára nam 12% og
sætanýting var 86,2% samanborið við 85,4% á sama tíma í fyrra.  Farþegum
fjölgaði mest á N-Atlantshafsmarkaðinum eða um 15,7% og voru þeir 53% af
heildarfarþegafjölda félagsins í millilandaflugi í júlí. 

Farþegar í innanlandsflugi og Grænlandsflugi voru rúmlega 32 þúsund í júlí og
fækkaði um 10% á milli ára.  Framboð félagsins í júlí var dregið saman um 15%
samanborið við júlí 2012. Sætanýting nam 73,8% og jókst um 6,5 prósentustig á
milli ára. Seldum blokktímum í leiguflugi fækkaði um 11% á milli ára. 
Fraktflutningar jukust um 9% frá því á síðasta ári. Fjöldi seldra gistinótta á
hótelum félagsins jókst um 4% milli ára. Herbergjanýting var 89,2% samanborið
við 88,4% í júlí í fyrra. 



MILLILANDAFLUG                      JÚL 13     BR. (%)     ÁTÞ 13      BR. (%)
------------------------------------------------------------------------------
Fjöldi farþega                     306.241         11%  1.273.361          13%
Sætanýting                           86,2%  0,8 %-stig      79,4%  -1,6 %-stig
Framboðnir sætiskm. (ASK'000.000)  1.032,3         12%    4.646,6          18%
INNANLANDSFLUG OG GRÆNLANDSFLUG     JÚL 13     BR. (%)     ÁTÞ 13      BR. (%)
------------------------------------------------------------------------------
Fjöldi farþega                      32.495        -10%    181.864         -10%
Sætanýting                           73,8%  6,5 %-stig      71,2%   3,2 %-stig
Framboðnir sætiskm. (ASK'000.000)     20,2        -15%       90,1         -14%
LEIGUFLUG                           JÚL 13     BR. (%)     ÁTÞ 13      BR. (%)
------------------------------------------------------------------------------
Flugvélanýting                      100,0%  5,0 %-stig      90,4%  -0,9 %-stig
Seldir blokktímar                    2.423        -11%     16.589         -11%
FRAKTFLUTNINGAR                     JÚL 13     BR. (%)     ÁTÞ 13      BR. (%)
------------------------------------------------------------------------------
Framboðnir tonnkm. (ATK´000)        21.151         13%    112.272           9%
Seldir tonnkm. (FTK´000)             7.381          9%     54.307           5%
HÓTEL                               JÚL 13     BR. (%)     ÁTÞ 13      BR. (%)
------------------------------------------------------------------------------
Framboðnar gistinætur               41.416          3%    189.032          11%
Seldar gistinætur                   36.923          4%    136.587          11%
Herbergjanýting                      89,2%  0,8 %-stig      72,3%  -0,4 %-stig

Nánari upplýsingar veita:

Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group s: 665-8801
Íris Hulda Þórisdóttir, forstöðumaður fjárfestatengsla Icelandair Group s:
840-7010