2015-12-30 17:38:26 CET

2015-12-30 17:38:26 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Reginn hf. - Fyrirtækjafréttir

Reginn hf.: Reginn undirritar kaupsamning um kaup á fasteignasöfnum Ósvarar ehf. og CFV 1 ehf.


Í tilkynningu Regins hf. þann 12. nóvember síðastliðinn kom fram að undirritað
hefði verið samkomulag um kaup á fasteignasöfnum Ósvarar ehf. og CFV 1 ehf. 

Í dag var undirritaður kaupsamningur milli Regins hf. og félaganna Ósvarar ehf.
og CFV 1 ehf. á grunni ofangreinds samkomulags. Með kaupsamningi þessum kaupir
Reginn hf. allt hlutafé í framangreindum félögum. Félögin tvö eru eigendur
þeirra fasteignasafna sem samkomulag frá 12. nóvember sl. náði til. Undirritun
kaupsamnings er gerð í kjölfar áreiðanleikakönnunar, sem nú er lokið. 

Kaupverð, eðli og umfang viðskiptanna sem og metin áhrif á Reginn hf. er í
samræmi við fyrri tilkynningu Regins hf. um kaupin. Tilkynningu Regins hf. frá
12. nóvember sl. má finna á heimasíðu félagsins www.reginn.is/fjarfestar. 

Vakin er athygli á að kaupsamningurinn er enn háður fyrirvara um að hluthafar
Regins hf. samþykki hlutafjáraukningu á hluthafafundi og að hluthafar falli frá
forgangsrétti til áskriftar að hinu nýja hlutafé. Hluthafafundur verður boðaður
á nýju ári og er stefnt að því að hann verði haldinn í mars.  Þá er fyrirvari
um samþykki Samkeppniseftirlitsins og að nýtt hlutafé verði skráð í Kauphöll. 

Áætlað er að afhending félaganna fari fram á öðrum ársfjórðungi 2016.



Nánari upplýsingar veitir:

Helgi S. Gunnarsson – Forstjóri – helgi@reginn.is – S: 512 8900 / 899 6262