|
|||
2014-03-17 14:56:17 CET 2014-03-17 14:57:18 CET REGULATED INFORMATION Tryggingamiðstöðin hf. - HluthafafundirTillögur og ályktanir fyrir aðalfund Tryggingamiðstöðvarinnar hf. 20. mars 2014.Endanlegar tillögur og ályktanir. Samkvæmt samþykktum Tryggingamiðstöðvarinnar hf. skal a.m.k. þremur dögum fyrir hlutahafafund birta upplýsingar um þær tillögur og ályktanir sem lagðar verða fyrir fundinn og eftir atvikum endurskoðaða dagskrá fundarins. Engar kröfur um tiltekin mál eða tillögur bárust frá hluthöfum og er dagskrá aðalfundar 2014 því óbreytt frá fyrri tilkynningu félagsins. Fyrir aðalfundinn liggja því óbreyttar tillögur og ályktanir frá stjórn félagsins, sbr. meðfylgjandi viðhengi. |
|||
|