|
|||
2017-01-30 18:18:52 CET 2017-01-30 18:18:52 CET REGULATED INFORMATION Reitir fasteignafélag hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur KauphallarinnarREITIR: Niðurstöður skuldabréfaútboðs 30. janúarLokuðu útboði Reita fasteignafélags hf. á skuldabréfum þann 30. janúar 2017 er lokið. Boðin voru til sölu skuldabréf í áður útgefnum og skráðum flokkum, REITIR151244, REITIR151124 og REITIR 22. Tilgangur skuldabréfaútgáfu félagsins er eftir atvikum endurfjármögnun á hluta núverandi skulda félagsins, til fjármögnunar fasteignaþróunar og mögulegra fasteignakaupa sem og til rekstrarþarfa. Alls bárust tilboð í flokkana að nafnvirði 2.120 milljóna króna. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði 780 milljóna króna á ávöxtunarkröfunni 3,60% í flokknum REITIR151244 og að nafnvirði 540 milljóna króna á ávöxtunarkröfunni 3,55% í flokknum REITIR151124. Tilboðum í flokkinn REITIR 22 var ekki tekið. Heildarstærð ofangreindra flokka verður eftirfarandi: Flokkur: Áður útgefið: Eftir útgáfu nú: REITIR151244 32.305.200.000 33.085.200.000 REITIR151124 2.690.000.000 3.230.000.000 REITIR 22 600.000.000 600.000.000 Gjalddagi áskrifta og afhending bréfa er fyrirhuguð 6. febrúar næstkomandi og óskað verður eftir því að nýju bréfin verði tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland sama dag. Nánari upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, á netfanginu einar@reitir.is eða í síma 669 4416. |
|||
|